Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 62
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
Skor, kóði, gráða, stigun
I SÍÐASTA PISTLI VAR FJALLAÐ UM HEITIN
skor og kóða. Stungið var upp á að skor yrði
notað um þær niðurstöður sérstakrar
talningar eða stigagjafar, sem táknaðar eru með
enska heitinu score, og að heitið kóði skyldi notað um
tákn og táknakerfi (code) lil skráningar
sjúkdómsgreininga.
Skor
Tekið var dæmi um nýyrðið áverkaskor sem notað
skyldi um niðurstöður mats á áverkum slasaðra
manna (injuries severity score). Heitið score kemur
einnig fyrir í fæðingarfræði og nýburalækningum.
Vissir þættir í líkamsstarfsemi nýbura á fyrstu mínút-
um lífs þeirra, hjartsláttur, öndun, vöðvaspenna, svör-
un við áreiti og húðlitur, eru metnir til stigagjafar eftir
aðferð sem kennd er við svæfingalækninn Virginíu
Apgar (1909-1974). Töluleg niðurstaða úr slíkri stiga-
gjöf er nefnd Apgar-score. Gildi eru á bilinu 0-10 og
gefa hærri tölurnar til kynna meiri lífsþrótt. Á ís-
lensku má tala um Apgar-skor, nýburaskor eða lífs-
þróttarskor. Styttri heiti væru þó vel þegin. í tölfræði
koma fyrir heitin raw score, sem nefna má hráskor,
og standard score, sem nefna má staðalskor. Rétt er
að ítreka að tillaga undirritaðs gerir ráð fyrir að skor
sé hér haft í hvorugkyni, það skorið.
Kóði
Af erlendum heitum, sem notuð eru um sjúkdóma-
kóða, má nefna discase code, morbidity code, mor-
phology code og mortality code, sem í beinni þýð-
ingu verða sjúkdóms- eða sjúkdómakóði, sjúkleika-
kóði, formgerðar- eða meingerðarlcóði og loks dátnar-
eða dánarmeinakóði. í erfðafræði er talað um
genetic code og er þá verið að tákna þær upplýsingar
sem kjarnsýra frumunnar ber, ýmist það láknkerfi
þriggja núkleótíða sem ræður amínósýrusamsetningu
prótína, eða erfðaupplýsingarnar í heild. I Iðorða-
safni lækna er heitið genetic code þýtt með íslenska
heitinu erfðalykill og skal síst amast við því. Erfða-
kóði eða genakóði virðast í fljótu bragði hafa fátt til
síns ágætis.
Gráða
Nafnorðið grade og sögnina to grade er ekki að finna
í Iðorðasafni lækna. Engu að síður eru þetta mikilvæg
hugtök í krabbameinsfræðum. Við vefjarannsókn á
krabbameinum er það oft regla að meta æxlisfrum-
urnar með tilliti til útlits þeirra og líkingar við eðli-
legar frumur af sama vefjauppruna. Slík aðgerð nefn-
ist á ensku grading og er hverju æxli þá skipað á eitt
af þremur til fjórum stigum mismunandi útlits, grade
I, II, III eða IV. Pað virðist liggja beint við að nefna
þetta gráður eitt til fjögur og aðgerðina gráðun.
Enska nafnorðið grade er talið komið úr latínu þar
sem gradus merkir þrep eða skref. Þaö er meðal ann-
ars notað um tilgreind stig íferli breytinga og stig eða
stöðu á ákveðnum mœlikvarða. Þannig ber einnig að
skilja notkun heitisins við mat á útlili krabbameins-
frumna. Gráðurnar fjórar tákna mismunandi stig út-
litsbreytinga hjá illkynja æxlisfrumum, þannig að á
hæstu gráðu eru krabbmein með mjög afbrigðilegum
og óþroskuðum frumum, sem að öðru jöfnu hafa
hvað verstar horfur. Krabbameinsmeðferð tekur oft
mið af slíkri gráðun.
Stlgun
I krabbameinsfræðum koma einnig fyrir hugtökin
stage og staging. íðorðasafn lækna þýðir nafnorðið
stage með íslensku orðunum þrep og stig. I öðrum
orðabókum má finna enn fleiri þýðingar: svið, leik-
svið, pall, vinnupall, viðkomustað o.fl. Það virðist
hins vegar komin á það nokkur hefð að tala um stig og
stigun krabbameina. Stig krabbameinsvaxtar miðast
við útbreiðslu meinsins frá upprunastað sínum, til
dæmis þannig að fyrsta stigs æxli sé bundið við upp-
runavef, svo sem slímhúð, að annars stigs æxli sé vaxið
djúpt inn í líffærið, þriðja stigs æxli sé vaxið út úr líf-
færinu og að fjórða stigs æxli hafi sent frá sér mein-
vörp. Nokkur mismunandi stigakerfi eru þó í notkun
og stigin því táknuð með kóða á ýmsa vegu, til dæmis:
A-D, 0-IV eða T0-T4,N0-3,M0-2, og verða þau kerfi
ekki rakin hér. Stigun er hins vegar sú aðgerð að
kanna og tákna útbreiðslu illkynja œxlis með kóða
samkvœmt tilgreindu kerfi.
Nauðsynlegt er að ofangreind hugtök: skor,
gráða, gráðun, stig og stigun verði tekin inn í íð-
orðasafnið.
Lbl 1994; 80: 257
62 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87