Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 111
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
ventional radiology. Undirritaður stakk upp á heit-
inu íhlutunarröntgenfræöi, en láðist að geta einnig
um inngripsröntgenfræði, sem Hlédís leggur nú til.
Sennilega var undirritaður sáttari við hljómfallið í
fyrra heitinu, en bæði koma þau að sjálfsögðu til
greina.
Lbl 1999; 85:371
Geislafræði, myndgreining
Pétur Hannesson, læknir, sendi tölvu-
póst vegna umfjöllunar um interventional
radiology (sjá 108. og 110. pistil) og vildi
vekja athygli á því að orðið röntgenfrœði væri nú
orðið úrelt sem heiti á radiology. Hann benti á að
notkun röntgengeisla skipaði nú lægri sess í
sérgreininni en verið hefði. Aðrar rann-
sóknaraðferðir, svo sem ómun (ultrasound) og
segulómun (nuclear magnetic resonance) hefðu
fengið meira vægi og nú væri sérgreinin gjarnan
nefnd niyndgrcining.
Geislafræði
Um heitin radiologist (geislalæknir) og radiographer
(röntgentæknir) var fjallað í 73. pistli (Lbl. 1996; 82:
80). Vakin er athygli á því vegna þeirrar ábendingar
Péturs að röntgenlœknar séu nú nefndir myndgrein-
ingarlæknar. Heitið er mjög lýsandi, fyrir þá sem til
þekkja, og bendir á myndgreininguna sem einn aðal-
þáttinn í starfi geislalækna. Það er þó að mati undir-
ritaðs of langt, framandi fyrir þá sem ekki til þekkja
og kemur því eflaust til með að eiga erfitt uppdráttar
hjá almenningi.
íslenska heitið, geislalœknir, sem birtist í íð-
orðasafni lækna er einnig vissum annmörkum háð.
Við fyrstu sýn virðist það vísa til læknis sem læknar
með geislum, radiotherapist. Úr því mætti þó bæta
með því að taka greiningarþáttinn inn og búa til
heitið geislagreiningarlæknir, en þá er aftur komið
að óæskilegri lengd. Aðdáendur stjörnustríðsþátt-
anna myndu vafalítið gera ráð fyrir að geislalæknir
sé sá sem rannsaki sjúklinga og lækni jafnóðum
með geislum. Rétt er að geta þess að íðorðasafn
lækna nefnir radiotherapist geislunarsérfrœðing.
íhlutun
íhlutun, inngrip og afskipti eru samheiti og tákna
það að höfð eru afskipti af tiltekinni atburðarás. Heit-
inu interventional radiology er ætlað að afmarka
það svið eða þá grein röntgenlækninga sem beitir
ekki aðeins hlutlausum rannsóknum heldur einnig
íhlutun og meðferð. Röntgenlæknirinn, sem setur
stoðnet í æðar, er ekki lengur hlutlaus rannsakandi,
heldur er hann farinn að ástunda eða taka þátt í með-
ferð. Það er meðal annars, þegar sótt er inn á ný svið
í starfsemi eða fræðigrein, að þörf fyrir ný heiti getur
komið upp.
Myndgreining
Heitið myndgreining lýsir vel þeim þætti í starfi
röntgenlæknisins sem felst í því að greina sjúklegar
breytingar með myndskoðun. Vafalítið er það einnig
mjög gagnlegt til þess að beina athyglinni frá hefð-
bundnum röntgenmyndum og að þeirri myndgrein-
ingu sem byggir á notkun tölvutækni. Tölvusneið-
myndatæknin gerir það meira að segja mögulegt að
búa til og greina myndir sem aldrei hafa verið „tekn-
ar“.
Röntgenlæknirinn er hins vegar ekki einn um
að fást við myndgreiningu. Myndræn greining fer
einnig fram við skoðun sjúkdómsbreytinga með
berum augum eða í smásjá. Myndgreining er
reyndar bein þýðing á enska heitinu image ana-
lysis og jafnvel tölvur eru farnar að fást við slíkt.
Heitið imagc analyser, myndgreinir, vísar til dæmis
í tölvubúnað sem getur gert mælingar eða aðrar
athuganir á ákveðnum tegundum mynda. Óheppi-
legt væri því ef heitið myndgreining væri tekið frá
til þess að nota það eingöngu um iðju röntgen-
læknisins. Með útbreiðslu stafrænnar myndatöku
(digital photography) munu myndvinnsla og
myndgreining vafalítið breiðast út til fleiri sviða
rannsókna og lækninga.
Að lokum má benda á að samsetningin íhlutun-
armyndgreining er hvorki sérlega lipur né lýsandi.
Serum marker
I tölvupósti kom einnig beiðni um að taka enska
heitið serum marker til skoðunar. Samhengið var
það að hækkun á magni (eða aukin þéttni) tiltekinna
efna í sermi gæfi til kynna að vefjaskemmd hefði
orðið. Slík efni væru þá nefnd á ensku serum markers
of tissue damage. Upphaflega hugmyndin var sú að
íslenska heitið yrði sermismerki. ísleifur Ólafsson,
læknir, kom þá með tillöguna sermisvísir og er það
heiti hér með lagt fram til umræðu. Út frá þeirri hug-
mynd má síðan búa til heitin bólguvísir og vefja-
skemmdavísir.
Lbl 1999; 85:476
111
Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 111