Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 74
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
íslensku þýðinganna á fræðiheitunum flutter og
fibrillation. Hvorugt er að finna í Islenskum læknis-
fræðiheitum Guðmundar Hannessonar frá 1954. í A-
hefti Iðorðasafns lækna, sem kom út í júlí 1986, er
atrial fibrillation þýtt með heitinu gáttatitringur og
atrial flutter er þar nefnt gáttaflökt. í V-heftinu, sem
kom út í júlí 1989, er ventricular fibrillation nefnt
sleglatitringur, en bætt hefur verið við heitinu slegla-
tif Ventricular flutter er nefnt sleglaflökt.
Samkvæmt Orðsifjabók Ásgeirs Blöndals
Magnússonar er íslenska nafnorðið tif notað um
smágerðar og snöggar hreyfmgar, svo sem tif í
klukku. I Islenskri orðabók Menningarsjóðs er tif
útskýrt á tvo vegu: 1. hröð og tíð hreyfmg, 2. lágt og
títt ganghljóð: tif í klukku. Flestum mun víst finn-
ast að þessar skýringar gefi til kynna að tif sé hröð
og reglubundin hreyfing. íslenska orðið flökt gefur
hins vegar til kynna hvikulleika eða óstöðugleika,
samanber flöktandi kertaljós. Pað hefur sennilega
orðið fyrir valinu vegna hljóðlíkingar við enska
orðið flutter.
Örverur og sýklar
Sýkill er örvera (microbe, micro-
organism), örsmá lífvera sem sýkt getur
lifandi verur og valdið sjúklegum
breytingum í vefjum þeirra. Helstu flokkar sýkla eru
bakteríur (bacteria), sveppir (fungi) og frumdýr
(protozoa). Pó að heilið microbe hafi eingöngu verið
ætlað þeim lífverum sem sjást í smásjá, þá fjallar
sýklafræðin einnig um veirur (viruses), sem eru of
smáar til að sjást í Ijóssmásjá, og orma (helminths),
sem vel sjást með berum augum.
Sýklar og sníklar
Rétt er að ítreka það að sýklar eru allar þær örverur
sem geta sýkt og valdið sjúklegum breytingum hjá
öðrum lífverum. Heitið er ekki takmarkað við bakt-
eríur. Rotverur (saphrophytes) nefnast þær örverur
sem lifa í rotnandi lífrænu efni, en sníklar (parasites)
þær sem lifa á öðrum lifandi verum og fá næringu frá
þeim. Merking heitisins sníkill í læknisfræðilegu sam-
hengi er þó núorðið gjarnan þrengri og vísar þá
eingöngu í þau frumdýr og orma sem sýkja menn.
Mikilvægur flokkur örvera (commensal micro-
organisms) lifir hins vegar sníkjulífi á manninum
án þess að valda sjúkdómi eða sjúklegum breyting-
um. Þær mætti nú kalla gistiverur. Með hljóðlík-
ingu við heitið sníkill gæti gistivera einnig heitið
gistill. Ymsar gistiverur valda þó sjúklegum breyt-
ingum þegar sýklavarnir líkamans bila eða þegar
þær komast inn í vefi gegnum rofið yfirborð. Slíkar
verur nefnir íðorðasafnið tækifærissýkla.
Titur og tif
Undirrituðum líst ekki á þá hugmynd að heitunum
verði snúið við, þó hann sé sammála Þorkeli um það
að nafnorðið tif sé ekki heppilegt til að lýsa fibril-
lation í hjartavöðva. Óregluhreyfingin er meira í ætt
við titring en tif. Því kom fram sú hugmynd að nota
megi heitið titur um þetta fyrirbæri. Það er hvorug-
kynsnafnorð og finnst í Orðabók Menningarsjóðs í
samsetningunni augnatitur: augnatitringur. I íð-
orðasafni lækna er titur notað í tveimur samsettum
orðum, annars vegar titurvilla, delirium tremens, og
hins vegar titurrafrit, vibrocardiogram. í báðum til-
vikum má líta svo á að titur sé styttingarmynd orðsins
titringur, sem á í raun vel við um fibrillation. Þrátt
fyrir að hafa síðan lagst undir feld með allar tiltækar
orðabækur tókst ekki að finna betra heiti en flökt til
að tákna flutter. Ef til vill er ekki nauðsynlegt að
breyta. Gaman væri nú að fá að heyra skoðanir og til-
lögur lesenda, ef einhverjar eru.
Lbl 1995; 81:679
Sýklaheiti
Heiti ýmissa sýkla hafa verið þýdd á íslensku og
hljóma dável. Nefna má keðjuhnettlu fyrir Strepto-
coccus, klasahnettlu fyrir Staphylococcus, bogsýkil
fyrir Campylobacter, snœldugeril fyrir Clostridium
og veiru fyrir virus.
Flest íslensku sýklaheitin eiga þó erfitt upp-
dráttar. Sum sýnast hjákátleg, svo sem blóðfíkill
fyrir Hemophilus og iðrakeðjusýkill fyrir Entero-
coccus, en önnur óhæfilega stirðleg, svo sem
lungnabólgustafsýkill fyrir Klebsiella pneumoniae.
Enn fremur má segja að nákvæmni skorti þegar
almennt lýsandi heiti kemur í stað fræðilegs nafns,
sem á að vera einhlítt.
Heitið bactcrium (ft. bacteria) er myndað af
gríska orðinu baktron sem merkir stafur. íðorða-
safnið gefur íslensku heitin baktería, sem er kven-
kynsorð, og gerill, sem er karlkynsorð. Heitið gerill
vísar til þess að flestar bakteríur geta gerjað,
sundrað vissum lífrænum efnasamböndum og
breytt þeim í einfaldari efni. Gerjunarhæfni bakt-
ería er nú notuð við bakteríurannsóknir til að að-
greina tegundir þeirra. Gerill er þó gagnslítið heiti
annars staðar en á rannsókastofum, enda nota
flestir læknar nú heitið baktcría í daglegu starfi.
Sýklar eru mjög margir og tegundum þeirra
virðist stöðugt fjölga. Stöðugt er unnið að grunn-
rannsóknum á sýklum og sú vitneskja sem fæst
leiðir stundum til þess að viðtekin flokkun breytist
eða að skipta verður um nöfn á ákveðnum tegund-
70
74 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87