Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 41
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
Scopia - kögun
Fram hefur komið tillaga um að holspeglun af ýmsu
tagi verði kölluð kögun. Þarna er um fornt orð að
ræða, köguður var varðmaður sem skyggndist um og
kögunarhóll (kagaðarhóll) var sjónarhóll, útsýnis-
hœð eða varðmannshóll. Þetta orð mun vera komið
í notkun, en skoða þarf nánar hvað það hefur í för
með sér. „Endóskópisti" er til dæmis vandræðalegt
slanguryrði, en er „köguður“ betra?
FL 1992; 10(7): 4.
Kögun
I ÞESSUM PISTLI VERÐUR HALDIÐ ÁFRAM
umræðu um orðið kögun. Orðabók
Menningarsjóðs birtir sögnina að kaga í
merkingunni 1. skyggnast um, horfa yfir, 2. vaða,
kafa. í fyrri merkingunni mun þetta sagnorð einnig
vera til í færeysku og nýnorsku, samanber íslenska
orðsifjabók. í Samheitaorðabókinni má meðal annars
finna sögnina að kaga sem eitt af samheitunum fyrir
sögninga að gægjast, en þar eru einnig sagnirnar
gauka, glugga, horfa á og kíkja. Nafnorðið kögun
finnst einungis í íslenskri orðsifjabók og er þar útskýrt
sem það að litast um.
Þetta orð mun þegar hafa verið tekið í notkun á
handlækningadeild Landspítala og hefur meðal
annars sést á vefjarannsóknarbeiðnum sem heiti á
ákveðinni tegund aðgerða. Fyrir nokkru var undir-
ritaður til dæmis að smásjárskoða vefjasneiðar úr
gallblöðru og sá þá að aðgerðin, sem gaf af sér hina
bólgnu gallblöðru, var nefnd gallkögun. Ef rétt er
skilið merkir gallkögun fjarlœging gallblöðru með
sérstakri aðgerð í tengslum við kviðarholsspeglun.
Vera má þó að þessi skilningur sé ekki réttur og að
heitið gallkögun hafi einungis átt að merkja gall-
vega- eða gallblöðruskoðun með kviðarholsspeglun,
en að því hafi ekki verið ætlað að ná einnig yfir
fjarlægingu líffærisins.
Gallkögun
Fullyrða má að heitið gallkögun í fyrri merkingunni
sé ekki alveg nógu nákvæmt, því að gall- getur vísað í
gallvökva, gallblöðru, gallganga eða gallrás. Auðvitað
er það útúrsnúningur, en gallkögun gæti merkt fjar-
lœging galls við kviðarholsspeglun. Gallblöðrukögun
hefur hins vegar ótvíræða tilvísun, og á sama hátt yrði
heitið gallsteinakögun nothæft, ef slíkar aðgerðir er á
annað borð hægt að gera, að fjarlægja gallsteina við
kviðarholsspeglun. í þessari merkingu mætti þá einnig
nota heitið botnlangakögun um fjarlœgingu botn-
langa við kviðarholsspeglun og legpípukögun um
fjarlœgingu eggjaleiðara við kviðarholsspeglun. Hafi
þetta verið ætlunin þá hefur upprunalegri merkingu
orðsins kögun verið breytt svo að miklu munar.
Hafi það hins vegar verið ætlunin að orðið gall-
kögun væri eingöngu notað í síðari merkingunni,
gallvega- eða gallblöðruskoðun með kviðarhols-
speglun, þá vantar heiti sem tekur einnig til fjar-
lægingar gallblöðru. Síðari merkingin er nær hinni
upprunalegu, en þá þarf að velja um það, hvort
kögun eigi eingöngu að koma í stað heitisins hol-
speglun, eða hvort kögun eigi einnig að nota um
aðrar tegundir af speglun, að magaspeglun verði
magakögun, blöðruspeglun verði blöðrukögun og
svo framvegis. Hugsanlegt er að heitið speglun
megi nota um skoðun á innra borði líffæra, en að
kögun verði eingöngu notað um skoðun á ytra
borði þeirra.
Tillaga
Undirritaður er þó ekki sáttur við að heitinu speglun
sé útrýmt og að kögun komi í staðinn. Speglun hefur
náð mikilli útbreiðslu, er stutt og auðskilið og hefur
ekki augljósa ókosti aðra en hugsanlega eðlisfræði-
lega ónákvæmni. Hvað ætli sjúklingurinn komi annars
til með að hugsa þegar læknirinn segir ábúðarfullur
við hann: „Við þurfum nú að kaga á þér magann, væni
minn!“ Kögun er hins vegar stutt og lipurt heiti, sem
vafalaust er horfið úr nútímamáli í sinni upprunalegu
merkingu, og mætti því að skaðlausu komast í notkun
aftur og fá þá merkinguna jjarlœging líffœris við hol-
speglun. Nóg um það í bili, en ef aðrir vilja leggja orð
í belg, þá er það kærkomið.
Er nú enn hætta á ferðum ?
1 orðapistli í mars 1991 var sagt frá sessat-veiki, sem
þá fór um sjúkrahúsin eins og eldur í sinu. Hún lýsti
sér þannig að eitt af orðskrípunum sessat, semsat,
sensat eða sest skaut upp kollinum í mæltu máli hve-
nær sem hik varð á tali, jafnvel oftar en einu sinni í
sömu setningu. Ekki er vitað til að gripið hafi verið til
neinna sérstakra aðgerða gegn veikinni og nú er hún
talin vera að renna sitt skeið. Annað afbrigði, svo-
kölluð þúvst-veiki, sem lét á sér kræla hjá ungu fólki,
varð aldrei mjög alvarleg á sjúkradeildum, en virðist
heldur ekki hafa rénað neitt að ráði.
Nú er það O-kei-bae-bæ-veikin, sem er að verða
að faraldri. Margir góðir og hreinlífir heilbrigðis-
starfsmenn eru komnir með ótvíræð byrjunarein-
kenni, en verst er að þeir gera sér alls enga grein
fyrir því sjálfir. Rætt hefur verið um að hefja mót-
aðgerðir sem fyrst. Tæknideildir Ríkisspítalanna
Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 41