Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Blaðsíða 120
(ÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130
samsetn.: ónœmi, sóttnœmi, tilfinninganœmi. Til
gamans má geta þess að elsta heimildin í ritmálsskrá
Orðabókar Háskólans um notkun orðsins ofnæmi er
frá 1922, úr bókinni Dulmætti og dultrú, þar sem það
virðist koma fyrir í kaflaheiti: Ofskynjun og ofnæmi
dáleiddra.
Iðorðasafnið notar orðið ofnæmi um enska
heitið allergy. Islensk orðabók Máls og menningar
gefur tvær skýringar á ofnæmi. 1. það að þola ekki
(verða veikur af) að neyta vissra fœðutegunda eða
snerta tiltekin efni (ávexti, fiður o.fl.), þola jafnvel
ekki nœrvist þeirra án þess að veikjast (t.d. af
exemi); 2. finnast e-ð alveg óþolandi. Pessi
tilvitnun sýnir annars vegar almenna læknisfræði-
lega merkingu orðsins ofnæmi og hins vegar
sérstaka (ekki sértæka!) tilfinningalega og næstum
spaugilega notkun þess. Sértæka læknisfræðilega
merkingin er svo sú sem birtist í Iðorðasafninu:
Sjúklegt ástand þar sem afbrigðileg ónœmisvið-
brögð við ofnœmisvaka leiða til bólgu eða vefja-
skemmda. Þessi lýsing getur átt við um allar
tegundir ofnæmisviðbragða, frá bráðaofnæmi
(immediate hypersensitivity) til síðkomins of-
næmis (delayed hypersensitivity).
Heitið hypersensitivity er venjulega notað sem
samheiti við allergy, en hefur fengið íslenska heitið
ofurnæmi í íðorðasafni lækna. Forliðurinn ofur-
hefur sterka áherslu og táknar afar-, feikna-, geysi-
eða mjög mikið af einhverju. Vissulega getur slíkt
átt vel við um sum þau viðbrögð sem sjást við
ofnæmi, en engu að síður finnst undirrituðum að
áherslan sé of sterk.
Lausir endar
Síðar í bréfi sínu segir Þorgeir: „Sé spurt um lausa
enda, þá sýnist bráðaofnœmi gera anaphylaxis
bœrileg skil, Pví til viðbótar má segja að heitið
nnaphyluxis er komið úr grísku, myndað úr
forskeytinu ana-, burt frá, og nafnorðinu phylaxis,
vörn. Upprunalega var það sett saman til að tákna
minnkaða mótstöðu eða þol tilraunadýra gagnvart
endurteknum skömmtum af eitri. Löngu síðar kom í
ljós að þarna hafði verið um ofnæmisviðbrögð að
ræða. Nú er heitið anaphylaxis ýmist notað um
bráðaofnæmislost, anaphylactic shock eða stað-
bundið bráðaofnœmi, local anaphylaxis, ofnæmis-
viðbragð af tegund I.
Hneigð merkir tilhneiging, ofnæmi merkir of
mikil viðkvæmni gagnvart áhrifum og frá Þorgeiri
koma lokaorðin: en ofnœmishneigð, þetta Ijósa
orð, þýðir nákvœmlega það sem það þýðir. “
Lbl 2000; 86: 207
Lækningabók handa sjómönnum 1967: „Ofnæmi nefnast annarleg viðbrögð líkamans við ýmsunt
efnum eða hlutum, sem líkaminn annars er hlutlaus gagnvart. Ofnæmi getur verið meðfætt eða áunnið.
Peim, sem ofnæmir eru, geta hinir eðlilegustu hlutir reynzt lífshættuleg eiturefni. Menn geta haft ofnæmi
fyrir alls konar matartegundum, lyfjum, jurtum. dýrum, sýklum, ryki og reyk og jafnvel fyrir hita, kulda
og birtu. Alkunnugt er að börn l'á oft úlbrot af eggjum og fiski (,,fiskibólur“). Ýmsir fá astma af hundurn,
köttum, hestum og heyi (,,heymæði“). Við penicillin-inndælingu getur sá , sem ofnæmur er fyrir
penicillini, fengið hættulegt lost. Ofnæmi birtist í ýmsum myndum, svo sem útbrotum, kláða, eksemi,
astma, höfuðverk, hnerrum, niðurgangi, rennsli úr nefi og augum, stundum sem hættulegt lost, er getur
valdið meðvitundarleysi og dauða.“
Sameinað sjúkrahús
Ríkisspítalar og Sjúkrahús Reykja-
víkur hafa verið sameinuð. Leitað var til
starfsfólks á sjúkrahúsunum og einhverra
fleiri aðila um hugmyndir að nafni á hina nýju
stofnun. í fréttasafni á heimasíðu Ríkisspítala má
finna lista yfir þær 84 tillögur sem bárust. Spaugfuglar
gripu tækifærið (Báknið, Hús Andanna, Landskota-
spítalinn, Selskapssjúkrahúsið), ekki síður en aðrir
(Háskólasjúkrahús íslands, Háskólaspítalar
íslands, Landssjúkrahúsið, Ríkisspítalar). Hug-
myndaauðgi tillögusmiða virðast engin takmörk hafa
verið sett (Björg, Ból, Fjöl, Hörn, Tögg, Vermir,
Vör, Þor, Þöll og Öflga), en úrskurðarnefnd var
skipuð og niðurstaða fékkst. I reglugerð Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins, nr. 127/2000 frá 2.
mars 2000, kemur fram að hin nýja stofnun ber nafnið
Landspítali, háskólasjúkrahús.
Tillögusafnið fékk að sjálfsögðu einnig
umfjöllun spekinganna í matsalnum. Þar sýndist
sitt hverjum og varð hin besta skemmtun af. Ein af
spurningunum, sem þar komu fram, er tilefnið að
umfjöllun á þessum vettvangi: Hvers vegna heitir
spítalinn „Landspítali“ en ekki „Landsspítali"?
Málfræöi orömyndunar
Ýmsir halda því fram að nafnið „Landspítali “ sé ekki
rétt myndað og að um villu sé að ræða, „s“-in eigi að
vera tvö en ekki eitt. Því er til að svara að þarna er um
121
120 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87