Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 121

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 121
IÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 svonefnda stofnsamsetningu að ræða, þegar stofn fyrra orðsins er tengdur við síðara orðið „spítali" til að mynda heitið, Landspítali. Stofn orðsins „land“ finnst í þolfalli, en orðið er eins í nefnifalli og þolfalli. Pessi orðmyndun er því málfræðilega rétt, en jafnrétt er hins vegar að nota eignarfallssamsetningu til að búa til heitið Landsspítali. í símaskrá „Landssímans“ eru eignarfalls- samsetningar nafna sem byrja á „Land-“ heldur fleiri (dæmi: Landsafl, Landsbanki, Landsbjörg, Landsbókasafn, Landsnefnd, Landssamband, Landsvirkjurí) en stofnsamsetningar (dæmi: Landbúnaðarráðuneyti, Landgrœðsla, Land- lœknir, Landmœlingar, Landnáma, Landvari, Landvernd). í ritinu Leiðbeiningar fyrir orðanefndir (íslensk málstöð 1991) er sagt frá þvf að eignarfallssamsetningar séu rniklu algengari, en um val á samsetningarleiðum er þetta sagt: „Best er að taka mið af hliðstæðum orðum eða hefð og láta máltiljinningu ráða. “ Merkingarlega getur verið um mun að ræða eftir því hvor samsetningaraðferðin er notuð. Nægir að taka sem dæmi orðin landmaður (starfsmaður sem vinnur að afla í landi) og landsmaður (íbúi, borgari lands). Merkingar- munurinn þarf ekki að vera fyllilega rökréttur, en byggist að hluta á því að orðhluti hafi nokkrar mismunandi merkingar. Land merkir til dæmis þurrlendi, árbakki, vatnsbakki, strönd, ríki, landareign, landsvæði, flatur hluti e-s. Þá kemur einnig fram ábending um að forðast þær „samhljóöasamsetningar" á liðamótum samsettra orða, sem óþægilegar verða í framburði. Dæmið, sem þar er tekið um óþægilega eignarfallssamsetningu, er „fisksbúð“ í stað hinnar hefðbundnu og lipru stofnsamsetningar „fiskbúð“. Nafnið Landspítali er óneitanlega þægilegra í framburði en Landsspítali. Landspítali I ritmálsskrá Orðabókar Háskólans má finna bæði orðin: landsspítali (heimild frá 1863) og landspítali (frá 1896). „Landsspítali“ virðist því upprunalegri orðmynd, en ljóst er að snemma hefur það gerst að annað „s“-ið hafi stundum fallið brott. I ritmáls- skrána hafa einnig verið skráð nokkur margsamsett orð, sem ýmist innihalda eitt „s“ eða tvö: lands- spítalahugmynd, landspítalamál, iandsspítalamál (frá 1917), landspítalasjóður (frá 1927), lands- spítalastofnun (frá 1897), landspítalaskortur (frá 1897) og landsspítalaþörf (frá 1917). Ákveðin hefð virðist því ekki hafa myndast á þessum árum. Vilmundur Jónsson, landlæknir, fjallar ítarlega um stofnun Sjúkrahúss Reykjavíkur árið 1866 (Lækningar og saga 1969) og rekur margt úr þeirri umræðu sem fram fór á næstu áratugum um stofnun kennsluspítala. 1 þeirri umfjöllun er alltaf notað heitið „landsspítali“. Gunnar M. Magnús segir frá því í Landspítalabókinni (Ríkisspítalar 1981) að á fyrsta almenna læknafundinum í Reykjavík (árið 1896) hafi eitt af dagskrármálunum verið „Landsspítali“ og að rúmum 30 árum seinna, þegar spítalinn hafði verið reistur, var sett lágmynd á burst hans sem bar áletrunina „Landsspítali Islands“. Þessi áletrun sést nú ekki en yfir suðurdyrum er áletrunin „Landsspítalinn“. Sjálfur notar Gunnar heitið „Landspítali" í umfjöllun sinni en gefur ekki neina vísbendingu um það hvenær „s“-ið hafi fallið brott. Lengra komst undirritaður ekki með þessa sögulegu athugun og veit ekki enn hvort eða hvenær tekin hafi verið formleg ákvörðun um breytinguna. Lbl 2000; 86: 308 Ákveðinn greinir eða ekki? í fundargerð stjórnar sjúkrahúsanna í Reykjavík þann 1. mars 2000 segir frá því að greidd hafi verið atkvæði um þá valkosti sem þannig er lýst: „Land(s)spítali(nn)“ og „Háskólasjúkrahús(ið)“. Sá kostur að láta stofnunina heita „Landspítalinn“ fékk ekki brautargengi. Vera má að ætlunin hafi verið sú að hið nýja nafn yrði með formlegri og virðulegri blæ en hið eldra. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvort almenningur tekur ástfóstri við hið nýja nafn eða heldur áfram að tala um „Landspítalann“ eins og gert er við „Landsbankann“ sem ber hið formlega nafn „Landsbanki íslands“. Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87 121
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.