Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 128

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Side 128
ÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Dægradvöl II. Uni hvað er rætt og hver er höfundurinn? „Það verður því að leggja ríkt kapp á, að veikin sje uppgötvuð í tíma, hjá þeim sem hana fá. En þetta hvílir að mestu leyti á sjúklingunum sjálf- um, og útheimtir fyrst og fremst þekkingu á háttalagi veikinnar. I öðru lagi athygli og eftirtekt, en uml'ram allt áhuga og fram- takssemi. - Það er til lítils gagn, þó menn fái grun um að ekki sje allt með feldu hvað.......— snertir, ef sá grunur er jafnharðan kæfður í sinnuleysi og trassa- skap.“ Leynikrabbamein 127 Eins og fram kom í 118. PISTLI hefur carcinoma occulta fengið íslenska heitið leynikrabbamein í íðorðasafninu og sér undirritaður ekki ástæðu til að gera tillögu um að breyta því. Aðrar samsetningar Iðorðasafnsins, þar sem occult kemur fyrir, eru samræmdar og nota orðhlutann leyni-. I almennum orðabókum má finna viðtekin heiti á ýmsum fyrirbærum sem starfa á laun, leynifélag, leynilögregla, leynislcytta, leynivínsali og leyniþjónusta. Segja má þó að í almennu máli sé nokkur hefð fyrir því að þýða occult með orðhlutanum dul- eða dular-. Með þeirri aðferð gæti carcinoma occulta fengið heitið dulkrabbamein. Agóðinn við það er sá að auðveldara verður þá að muna hvert erlenda heitið er. Mestur yrði ágóðinn þó ef tækist að finna nýtt íslenskt heiti sem vísaði í tvö aðaleinkenni occult carcinoma: að liggja í leyni og að hafa sent frá sér meinvörp. Meinvörp I framhaldi af umræðu um krabbamein má rifja upp þýðingar íðorðasafnsins á gríska heitinu mctastasis. meinvarp, meinrek, meinsáð, sáðmein. Læknis- fræðiorðabók Stedmans gefur til kynna að metastasis hafi verið notað á þtjá vegu: 1. um tilfærslu sjúkdóms eða tjáningarmerkja hans frá einum líkamshluta til annars og tekur dæmi um hettusótt, þegar sjúkdómurinn virðist hlaupa úr munnvatnskirtlunum niður í eistun; 2. um útbreiðslu staðbundins sjúkdóms til annarra svæða, svo sem útbreiðslu illkynja æxlis frá frumæxli til fjarlægra staða; 3. um flutning baktería frá einum líkamshluta til annars, ýmist með blóði eða vessa. Tilefni upprifjunar er íslensk þýðing á ensku sögninni to metastasize. íðorðasafn lækna gefur eingöngu miðmyndina af íslensku sögninni að varpa, það er að segja að meinvarpast. Undir- ritaður heyrði hins vegar virtan og smekkvísan starfsbróður nota sögnina að verpa. Hann sagðist líta svo á að frumæxlið verpti til annarra staða og vildi ekki Ijá máls á þeirri túlkun að frumæxlið varpaði til annarra staða. Hann bar fyrir sig nafnorðið varp, sem hann sagði í sinni sveit hafa verið notað um það að verpa og stað þar sem fuglar verpa. Tilvísun undirritaðs í Islenska orðabók Máls og menningar, kast, það að kasta, varpa, lét hann sér í léttu rúmi liggja. Fram til þessa hafði undirritaður ekki kynnsl öðru en að heitið meinvarp væri sambærilegt við kúluvarp. Rétt er að minna á að nafnorðið meinvarp er annars vegar notað um ferilinn, það að varpa, og hins vegar um viðfangið, það sem varpað er. Gaman væri að heyra frá fleiri læknum um þetta efni. Mismunargreining í 61. pistli (Lbl 1995;81:75) var ræll um dilTerential diagnosis sem Iðorðasafn lækna nefnir mismunar- greiningu eða samanburðargreiningu. Undirritaður lýsti þá skoðun sinni á íslensku heitunum með þessum orðum: íslenska heitið samanburðar- greining lýsir einkar vel því sem við er átt, sjúk- dómsmerki eru borin saman og aðgreining sjúk- dóma gerð. Heitið mismunargreining er ef til vill torrœðara við fyrstu sýn, en verður þó vel skiljan- legt við nánari skoðun. Finna þarf mismun á teiknum og einkennum þeirra sjúkdóma sem til greina koma. Því er þetta tekið upp að nú gætir tilhneigingar til að sleppa „r“-inu úr mismunargreining og skrifa „mismunagreining“. Þetta hefur undirritaður ætíð talið að væri ritvilla og haft Iðorðasafn lækna sér til stuðnings. Uppfletting í því sýnir að heitið er dregið af nafnorðinu mismunur sem í eignarfalli er mismunar. Uppfletting í Islenskri orðabók Máls og menningar leiðir þó í ljós að til er einnig nafnorðið mismuni, sömu merkingar, sem mundi þá verða mismuna í eignarfalli. Undirrituðum finnst ólíklegt, að þeir sem sleppa „r“-inu, geri það meðvitað og af þessari ástæðu. Verðum við ekki að láta íðorðasafnið ráða? Slettur og slangur Fyrst á annað borð er búið að opna nöldurskjóðuna, þá er rétt að víkja að málfari fyrirlesara eins á fræðslufundi á liðnum vetri. Svo langt er um liðið að hann þekkist örugglega ekki af tilvitnuðum dæmum. Þó efnið væri vel valið og efnistök með ágætum, þá gilti ekki það sama um notkun fræðiheita. Sletturnar gengu yfir áheyrendur í gusum. í flestum tilvikum var um að ræða einföld heiti sem auðvelt hefði verið að íslenska, eins og dæmin sýna: dókúmenntasjón (skráning, skjölun), efTektinn (áhrifin), fílterinn (sían), inndíkasjón (ábending), jatrógen (af völdum lækna), klíentelið (sjúklingarnir, viðskiptavinirnir), konntrólið (viðmiðið), kúrvan (línuritið), massívur (stór, mjög stór, þéttur), mctabólismi (efnaskipti), mínímal (lágmarks-), prófílaktískt (til forvarnar) og siggnifíkant (marktækur). Dægradvöl í síðasta pistli var dægradvölin úr bókinni Heilsurækt og mannamein, sem út kom árið 1943, nánar tiltekið úr kaflanum Aðferðir til þess að halda næmum sjúkdómum í skefjum, bls. 204. Höfundur kaflans er Niels Dungal, prófessor í meinafræði, og var hann að leiðbeina um það hvernig forðast ætti sýkla. Dægradvölin í þetta skipti er heldur eldri, eins og sjá má af stafselningunni (sjá kassa). Lbl 2000; 86:803 128 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.