Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Síða 9
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
103
verk, er sé lifandi, sýnilegt tákn þeirrar menningarþrár,
sem alla tíma lifir með þjóðinni.
Með fögnuði getum við viðurkennt, og það er okkar
mesta gleði, þegar við minnumst Snorra nú, að ísland nú-
timans liefur unnið menningarlega sigra, sem eru forn-
öldinni fullkomlega samboðnir. Og það væri einstaklega
rangt, að starblína á verðmæti fortíðarinnar, en hafa lok-
uð augun fyrir afrekum samtímans. fslenzk menning lief-
ur risið til vegs að nýju, og hin forna menning hefur hirzt
okkur í nýju ijósi. Ómetanlegt hefur verið starf þeirra
íslendinga, allt frá Sveinbirni Egilssyni til Sigurðar Nor-
dals, sem dýpkað liafa skilning okkar á liinni fornu nienn-
ingu og þar með eðli og örlögum þjóðarinnar. Ómetan-
leg eru okkur skáldin, allt frá Jónasi og Bjarna til Steplians
G. Stephanssonar og Einars Benediktssonar, Gunnars
Gunnarssonar og Halldórs Kiljans Laxness, er glætt liafa
samfélagslíf og samvitund þjóðarinnar, skapað henni ný
dýrmæt listaverk og vakið nýja trú á hæfileika liennar
lijá okknr sjálfum og öðrum þjóðum. Og þar að auki hefur
þjóðin í mörgum nýjum listgréinum unnið glæsileg verk
á síðustn tímum. Við höfum eignazt listmálara, mynd-
höggvara, liljómlistarmenn, sem hera listrænum hæfileik-
um íslendinga nýja vitnishurði. Við höfum eignazt vís-
indamenn og fræðimenn, sem á ýmsum sviðum hafa aukið
liróður íslenzkrar menningar eða lilúð að vexti hennar.
Við höfum reist háskóla og rannsóknarstofnanir, komið
upp náttúrugripasafni og fornminjasafni. Menningaráhugi
liinnar fámennu þjóðar hefur þannig birzt i fjölmörgum
greinum. Skáld, rithöfundar, listamenn, fræðimenn og
menntamenn liafa allir til samans lagt fram ómetanlegan
skerf til eflingar, álits og frægðar íslenzkrar nútímamenn-
ingar. Og allt þetta mikilsverða slarf hefur fram á þennan
dag verið í örum vexti, og er i sumum greinum rétt að
hefjast.
En það her skugga á gleði okkar, er við liugsum til þess,
hvernig þjóðfélag okkar siðustn árin býr að þessum gróðri.