Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1941, Page 97
Umsagnir um bækur: Jóhannes úr Kötlum: Eilífðar smáblóm. Bókaútgáfa Heimskringlu, Reykjavik 1940. 1 síðustu bókum sinum hefur Jóhannes úr Kötlum fyrst og fremst verið hugsjónaskáldið, sem vill vekja í brjósti þjóðar sinnar nýja trú á lífið og framtiðina. í ljóðum hans hefur fal- izt einarðleg skirskotun til samtiðarinnar, þau hafa verið túlk- un brennandi áhugamála og sannfæringar. Heitar tilfinningar, djörf hreinskilni, ádeilukraftur, hjartar hugsýnir og þróttmikið mál hefur gefið þeim sterkust einkenni og djúpa mannlega fegurð. Eilífðar smáblóm er með talsvert öðrum blæ en ljóðabækur Jóhannesar næst á undan. Efnið er allt ljóðrænt, kvæðin smá- gerð, fæst þeirra lengri en tvö til fjögur stutt erindi. Skáldið er hér hljóðlátara um áhugamál sín, fer litið á vegum manna og hefur gengið á tal við smávini sína í skauti náttúrunnar. Jóhannes er eins og að draga sig i hlé, flýja samtíðina og hinn óbærilega heim. í inngangskvæði bókarinnar segir: Hvar eru nú vor sælu sólarljóð, samúð og vizka og tign hins hvita manns? Verð ég að sjá hann villtan þurs á ný? Verð ég að mæna i þögn á glötun hans? Hvert á að flýja meðan allt er ógn, — einskis að vænla, nema blóðs og társ, — meðan hið veika kvak eins kvæðamanns kafnar í sjúkum ópum lýgi og dárs? Blómið í túni, hússins dygga dýr, dulúðga heiði, sólu roðna fjall: heyrið nú, meðan maður vopnsins deyr, mál ykkar vinar, hjartans þreytta kall. Skáldið sér réttlætið fótum troðið, orð sannleikans hötuð. Slíkt gerist ekki aðeins úti í heiminum, heldur líka uppi á íslandi. Sár túlkun þess er kvæðið L a n d r á ð:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.