Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 12
2
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
læti. Við vitum ekki, hvar við værum komnir, ef nazistar hefðu ráðið hér landi
í fimm ár. Svo mikið er víst, að þeir áttu hér kvislingastjórn vísa, og nægt fylgi
við hana, svo að gera má sér í hugarlund, hvers verkalýðshreyfingin og fylgjend-
ur hennar hefðu mátt vænta. Rétt er, að nazistavinir ganga hér enn hnakka-
kertir, og þjóðin hefur enga eldskírn hlotið, og af henni fer ekkert sigurorð. En
hún hefur komizt hjá þjáningum, sem enginn getur vitað nema hefðu orðið
henni óbærilegar. Nazistar hefðu ekki þurft langan tíma til að eyða Islendingum.
MEÐ HERNÁMSÁRUNUM verða tímamót í sögu íslendinga. Nafn íslands
er komið inn í viðburðasögu heimsins. Framtíð íslands og fortíð eiga ekki skylt
hvor við aðra. Sjö alda nýlenduaðstöðu er lokið. Ilafinn er ferill okkar sem sjálf-
stæðrar þjóðar, og samtímis er landið, sem við byggjum, orðið vettvangur stór-
viðburða og brú milli heimsálfa. Heimurinn hefur uppgötvað Island, ekki sem
hernaðarstöð eingöngu, heldur samgöngumiðstöð á leið nýrra farartækja. Hér
á landi hefur verið gerður stærsti flugvöllur Evrópu. Einangrun Islands er úr
sögunni, hvorki hlíf okkar né böl lengur. Ilvort sem við viljunt bregða okkur
til meginlands Evrópu eða Ameríku, tekur það aðeins nokkurra klukkustunda
flug. Í einu vetfangi hlasir við okkur nútíma heimslíf, og miðaldatilveran er
fyrnd saga, áður en við vitum af. Hin nýja samgöngutækni, auk gerbreyttrar
aðstöðu að öðru leyti, getur skapað Íslandi ný örlög, ekki ósvipað því, er gerð-
ist á 17. öld, er siglingaleiðir opnuðust um höfin og nöfn ýmissa smáþjóða
komust allt í einu inn í veraldarsöguna. Í samræmi við þessa breyttu aðstöðu
Íslands í heiminum hljóta sjónarmið þjóðarinnar að breytast og skapast nýr
grundvöllur efnahags og atvinnulífs. 011 stjórnarstefna verður að miðast við
nána samvinnu við aðrar þjóðir. Kunnátta, tækni og menning íslendinga verður
að hefjast á nútíma stig. Þessi sjónarmið réðu myndun þeirrar ríkisstjórnar,
er nú situr, en stefna hennar er að koma nýrri skipan ú atvinnuhætti lands-
manna, hefja efnahagslega sjálfstæðisharáttu íslendinga á nýjum grundvelli
samstarfs og sambúðar við aðrar þjóðir. Framtíð Islands getur verið undir því
komin, að þjóðin sé fljót að átta sig á hinum gerbreyttu viðhorfum, og glati ekki
vegna afturhalds, þröngsýni eða miðaldalegs hugsunarháttar úr hendi sér tæki-
færum, sem tryggt geta öryggi hennar í aldir frarn. Er t. d. sárt til þess að vita,
er íslendingum var fyrir skömmu gefinn kostur á að verða ein af Sameinuðu
þjóðunum, — og með því skilyrði einu að viðurkenna opinberar staðreyndir —,
að þröngsýni afturhaldsaflanna á Alþingi skyldi fá því ráðið að gera svarið svo
úr garði, að það var ekki talið jákvætt. Önnur eins þröngsýni á örlagastundum
]>jóða getur varðað alla framtíð þeirra, og gengið landráðum næst. íslenzka
þjóðin verður að gera allt, sem í hennar valdi stendur, til að bæta fyrir afglöp
Alþingis í þessu máli og sýna í verki, að hún vilji af heilum hug eiga samvinnu
við aðrar þjóðir.
VERALDARSAGAN GERIST HRATT um þessar mundir. Frá því orðin hér
að framan voru rituð, eða meðan verið er að renna örkum þessa heftis gegnum