Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Side 26

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Side 26
16 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í stríðslist standa norrænir menn það hótt í miðaldamyrkrinu, um það bil sem ísland byggist, að þegar þeir gera umsátina um París 886 nota þeir vopn og vígvélar sem alþekt voru í býzantínsk- um stríðum, en eru þá með öllu týnd niður í Vesturevrópu. Sigrar norrænna manna á Vesturlöndum og í Einglandi á víkíngatímunum eru þakkaðir því að þeir smíðuðu ekki aðeins íullkomnari skip og kunnu betur að sigla en aðrir Evrópumenn um þær mundir, heldur höfðu betri vopn, þarámeðal krossbogann, sem var gleymt vopn í Vesturevrópu síðan á dögum Rómverja, auk hinnar sérstöku nor- rænu járnaxar, breiðrar lángskeftu. Á bókmentaleg áhrif í þreingra skilníngi að austan verður ekki bent, af þeim góðum og gildum ástæðum að norrænir menn voru ekki bókargerðarmenn og fluttu ekki með sér bækur frá Býzantium, enda munu barbarar hafa átt þess lítinn kost að venja komur sínar í fílabeinsturna hinna lærðu í þvísa landi. En í fornum skáldskap goðfræðilegum eru greinileg merki kristilegra áhrifa, kristilegar rnyndir og sagnir, að vísu misskildar, aflagaðar eða umskapaðar einsog æ verður þegar sögur flytjast milli landa, en heimfærðar uppá norræna guði, og er þar Baldurssögnin einna augljósast nor- rænt afbrigði hinnar austrænu Jesúsagnar. Þó sá siður sé velþektur úr forneskju, að heingja fórnina, mann eða dýr, uppí tré, er erfitt að komast hjá því að ímynda sér kristin áhrif þegar frá því segir í Hávamálum, að guðinum sé fórnað sjólfum sér á tré: „Veit ég að ég hékk vindgameiði á nætur allar níu, geiri undaður og gefinn Óðni: sjálfur sjálfum mér.“ Bersýnilega hefur þó kristni krossinn verið Norðurlandamönnum óskiljanlegt og ógeðfelt tákn úr því þeir flytja hann ekki með sér vestur. 3 Eirmyndin á skjólukilpnum frá Oseberg hlýtur að verða hverjum manni æsandi forvitnisefni, sem virðir hana fyrir sér, og freista til ályktana í þá átt að trúarlegra hugmynda, bæði búddiskra og kristilegra muni hafa gætt i skrautlist Norðurlandamanna snemma á víkíngaöld: þetta er einhverskonar brahman, mannsmynd í húddhastellíngum, með stórt krossmerki á hrjóstinu, — mynd af skjólunni má finna í bók Nordals, íslensk menning, bls. 46. Betri mynd er í II. hindi verksins um Osebergfundinn, sömuleiðis í Sagabook of the Viking Club 1908.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.