Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 37

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 37
MINNISGREINAR UM FORNSOGUR 27 voru einar eftir arðgæfar — landsins. Nordal skýrir ágætlega hvern- ig vér hlýum okkur á tímum hnignunar og uppgjafar við stoltan arf sögunnar, vissuna um manngildi vort frá fornu fari, endurminn- ínguna um liðnar stórsveiflur víkíngaaldar og landnámstíma. Norð- menn og aðrir Skandínavar sveigjast undir hið kirkjulega áhrifa- vald samtímans, afl þess nútíma sem þá var. Sá konúngur sem svæl- ir undir sig ísland sömu árin og honum er þraungvað til að láta af hendi Suðureyar, Hákon gamli Hákonarson, sækir óðfús til suð- urs, ekki aðeins franskar bókmentir, kurteisi og prjál, heldur gefur hann til helmínginn af öllu reiðufé hins fátæka lands Noregs að öðlast krýníngu páfalegs legáta, sumar heimildir telja 30 þúsund merkur silfurs til páfa, aðrar segja 15 þúsund auk rífrar fúlgu frá norsku kirkjunni, svo mikið þótti fátækum smákonúngi á norð- urhjara við liggja að öðlast hlutgeingi undir ægishjálmi Rómastóls á þessari alveldisöld páfadómsins. Á meðan Skandínavía rennur undir hið vestræna kristilega menn- íngarsvið, sem hraðeflist eftir að verslun og velmegun hefst uppúr krossferðunum, eru andleg áhrif kirkjunnar á úteynni í Vestur- atlantshafi lítið annað en endurkast af hálfmáttlausu valdboði og ómarkvissum áróðri. Nordal segir að íslenska kirkjan sé „ræki- lega frábrugðin miðaldakirkjunni“. Satt er að hún er enn á 13. öld undir valdi og umráðum veraldarhöfðingja, en það form kristins dóms heyrir til eldra stigi miðalda. Þó er það eftilvill ekki svo rnjög kirkjan sem er frábrugðin, heldur viðtökuhæfileiki þeirrar þjóðar sem hérhafði játað trú.Vald kirkjulegrarhugsunar sunnanað réð ekki við hina fornu norrænu erfð í þessu vígi hennar sem var varið fjarlægð, stormum og æstu hafi, gat hvorki lamað hana né afmáð, einsog kristindómurinn hlýtur samkvæmt eðli sínu að reyna við allar stefnur; og þó þessar tvær stefnur rynnu leingi í einum far- vegi á íslandi er snertíng þeirra einsog kalds vatns við bráðið blý. Sá kristinn dómur, þetta undarlega sambland af lækníngu og pest, sem fyrir laungu var orðið annað eðli Vesturlanda, gat leingivel ekki bugað og aldrei fullbrotið reisn norrænna manna hér á landi: „Heyra má ég erkibiskups boðskap, en ráðinn er ég í að halda hann að eingu. Og eigi hygg ég að hann vilji betur né viti en mínir foreldrar, Sæmundur hinn fróði og synir hans.“ Þrátt fyrir mikið opinbert
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.