Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Page 38
28 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kristnihald, sem var fyrst og fremst form og ytra lögmál, hafa ís- lendíngar aldrei verið kristijir í líkingu við aðrar Evrópuþjóðir, nema að því leyti sem húngursneyðir kristnuðu okkur um tíma á 17. og 18. öld. Olafur Lárusson dregur af fjölda prestskyldarkirkna um 1200 að hér hafi þá verið einlægara og sterkara trúarlíf en nokkurntíma fyr eða síðar í sögu landsins. Sannleikurinn er sá að meðan hér standa flestar kirkjur eru samd- ar hér heiðnustu bókmentir í Evrópu, og ísland eina land álfunnar þar sem heiðinn andi skapar verk hámenníngarlegs gildis. Þeir sem til þekkja í Suðurlöndum vita hve valt er að dæma um einlægni trúarlífsins af fjölda kirknanna. Fjöldi kirkna segir ekki meira um einlægni trúarlífs í landi en fjöldi bindindisstúkna um hófsemi. 12 í jafnfáum dráttum og hér eru rissaðir gefst lítið rúm að greina í smærri atriðum þann mismun menníngar, hugarfars og afstöðu, sem gerskilur íslenskar fornsögur og vestrænan miðaldaskáldskap; ekki heldur til að bera saman hvað áþekt er með norrænum arfi heiðnum og kristninni. Sem betur fer eru nú uppi fræðimenn sem skýra fornrit vor á menníngarsögulegum grundvelli, og reyna ekki leingur, einsog áður var siður, að finna þeim stað með því að grafa eftir skyrinu á Bergþórshvoli eða benda á helluna sem Grettir reisti á Skjaldbreið. Vitanlega sækja Islendíngar margskonar áhrif í erlenda skáld- skaparhefð alla ritöldina, ekki síst franskar tískubókmentir um riddaraskap og kurteisi, nota erlendar fyrirmyndir að svo miklu leyti sem þær verða samrýmdar innlendri sagnlist, þó erfitt hafi reynst, jafnvel í svo margbreytilegri bók sem Njálu, að benda á bein teingsl við erlend rit, — einna eftirtektarverðust kynni að vera lík- íng sú sem Einar Ólafur Sveinsson greinir milli draums Flosa og frásagnar um múnka í Díalóg Gregoríusar mikla; í hinum einrækt- uðustu og sjálfrunnustu Íslendíngasögum einsog Egils gætir þó er- lendra áhrifa furðu lítið, og franskra tískuáhrifa varla. En allir hljóta að finna að í fornsögum íslands er eitthvert það efni, einhver sá andi, sem gerir þær annars eðlis en kristnar bókmentir, jafnt fyrir því þó kristið hnyss sé að þeim hér og hvar. Ef vér höfum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.