Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Síða 100
90
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
upp í eldgosum, flætt yfir hið forna yfirborð landsins og storknað
þar á sama hátt og hraun gera enn á vorum dögum. Hvert lag, þ. e.
hvert hamrabelti, er myndað í einu eldgosi, en við margendurtekin
gos lagðist hvert hraunlagið á annað ofan, og basaltspildur hlóðust
upp. Þær urðu geysistórar og mörg hundruð, jafnvel nokkrar þús-
undir metra á þykkt. Hraunin hljóta að hafa runnið á flatlendi og
breiðzt yfir stór svæði, því að víða má rekja hamrabeltin óslitin,
svo að mörgum kílómetrum skiptir. Auðvitað er hvert hraunlag
yngra en það, sem undir því liggur, og eldra en það, sem hvílir á
því. Hvert millilag hefur myndazt á því tímabili, sem leið frá því,
er hraunlagið undir því storknaði, þangað til það grófst undir nýju
hraunflóði. 011 myndunin hlýtur að hafa tekið mörg hundruð þús-
unda áf árum, eða öllu heldur milljónir.
Ekki er þó allt blágrýtið í fjöllum þessum hraun. Nokkuð af því
hefur storknað neðanjarðar, eftir að basaltspildan hafði hlaðizt
upp. Magmað, eða eldkvikan, sem myndaði þessar storkur, hefur
ekki komizt alla leið upp á yfirborð jarðar, heldur dagað uppi og
storknað í sprungum í jarðskorpunni. Margar af sprungum þessum
hafa að líkindum verið gossprungur, sem hraun hafa runnið frá,
en er gosunum slotaði, storknaði magmað, sem eftir var í sprung-
unum, og varð að geysimiklum storkuhellum, sem standa á rönd
og skera um þvert bæði hraunlögin og millilög þeirra. Þessar mynd-
anir eru nú kallaðar gangar. Bergtegund flestra þeirra er blágrýti
likt og í hraununum, en bergið er yfirleitt samfelldara, aldrei- frauð-
kennt, og stuðlarnir í því liggja láréttir. Bezt koma gangarnir fram
þar, sem þeir skera millilögin, því að þáu eru úr meyrara efni, og
skaga gangarnir þar fram úr hlíðunum eins og snasir eða garðar.
Þar sem gangar liggja út í sjó, mynda þeir bryggjur og hleinar, séu
þeir harðari en bergið í kring, en gjögur og hella, ef þeir eru
meyrari. — Svo ber einnig við, að blágrýtiskvikan fleygast í lárétta
stefnu inn á milli berglaganna, sem fyrir eru, og storknar þar. Slík
lög eru kölluð innskotslög eða laggangar. Þau likjast mjög hraun-
lögunum, og er oft erfitt að ganga úr skugga um, hvort einstök
hamrabelti í fjallshlíðum eru lieldur hraunlög eða laggangar.
Allvíða hefur hin glóheita bergkvika gert miklu stórfelldari inn-
rásir upp í blágrýtisspildurnar neðan úr djúpinu og storknað í