Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Síða 56

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1949, Síða 56
118 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Áradal, forða hríðum, forða mér við hríðum“. Útilegumenn síðari þjóðsagna eru ekki leingur einmana kappar ímynd Ásaþórs né átján grimmir reyfarar gæddir hörku jómsvíkínga, heldur litlaust drauma- fólk, venjulega karl og kona með hérumbil ekkert andlit, sem hrotið hafa af sér í bygðum og flúið mannlega réttvísi ósmeyk við hina guð- legu, leitað dularfullra staða í óbygðum, „hulinna plássa og yfir- skygðra dala“ einsog segir hjá Jóni lærða, — og fundið. Meinbugir geta verið af ýmsu tagi, piltur hefur numið burt prestsdóttur og lagst út með henni ellegar systkini fara á fjöll til að lifa í sifjaspellum, og er frásögn Jóns prests Halldórssonar af heimsókn Odds biskups Einars- sonar hjá „sakafólki fyrir kvennamál“ í nánd Ódáðahrauns næst því að koma til greina sem rök fyrir útilegumannabygðum. Víða rennur þessi tegund údlegumannarómantíkur ósundurgreinanlega samanvið huldufólkssögur. Loks bregður enn fyrir öðrum þræði hinni fornu gerð útilegumanna, afbrigði jötna og landvætta. Staðir rómantískra miðtímaþjóðsagna um útilegumenn eru ekki leingur kunnir deplar á landahréfinu einsog staðir reyfaranna átján, sem altaf settu þó einhversstaðar upp plaggatið sitt, oftast í miðri bygð, eða Grettis, sem venjulega hafði nokkurnveginn fasta áritun. í útilegu- mannasögum miðtímans liggur meiri hula yfir landinu, landafræði óbygðanna verður í bókstaflegum skilníngi draumkend, staðarákvarð- anir og örnefni komast á reik, staðfræðileg nákvæmni víkur fyrir hill- íngu og æfintýri. Hið ástblíða útilegufólk sextándu, sautjándu og átjándu aldar byggir svo víð svæði að það er hérumbil frágángssök að finna það, eða tilbúna staði svosem Áradal og alskonar útvíkkaða þóris- dali mjög í líkíngu við „Stíflugreyið" uppaf Fljótum einsog hún var áður en uppistaðan kom. Útilegufólk hittist af tilviljun þegar farið er „suður fjöll“, það er einhversstaðar „á Kjalvegi“, „í Ódáðahrauni“, „norðuraf Vatnajökli“ eða jafnvel í Vatnajökli, sömuleiðis „í Hörðu- breið“, „í Heinglafjöllum“ osfrv; dvalarstaðir þess ýmsir eru taldir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, upphafi flokksins Útilegumannasögur. Það er athyglisvert í þessum sögum að þó bygðamenn hitti hjú sem lifa í þesskonar hneykslanlegri sambúð á öræfum sem mundi gera þau óæl í bygð dettur aungvum í hug að álasa slíku fólki með orði né hugrenn- íngu, því síður segja til þess. Það er einsog hér sé tjáður draumur þjóðarinnar um friðland mönnum fyrir brjálkendum kynferðisofsókn-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.