Tímarit Máls og menningar - 01.05.1953, Page 47
EKKERT SVAR
37
Hann svarar ekki brosi hennar, en nú er jörðin ekki lengur til að
ganga á. Hann sendist í loftköstum framhjá henni til að sýna fögnuð
sinn og snýr við eftir lítinn spöl til að geta mætt henni aftur.
í því bili kemur drengur út úr mjólkurbúðinni með mj ólkurflösku
í hendinni og gengur grunlaus í veg fyrir hinn milda elskanda. Hann
er enn allur á lofti og þegar hann kemur auga á drenginn sveiflar hann
handleggjunum og rekur harðan hnefann af afli á nasir honum svo
hann fellur á götuna eins og hann hafi verið skotinn — flaskan brotn-
ar og blóð og mjólk blandast á gangstéttinni.
í sama vetfangi sér hann svartan skugga nálgast og heyrir konurödd:
andskoti — svín — götustrákur, og tveir löðrurigar fylgja.
En litla fallega prentaða stúlkan lýtur yfir barða drenginn, talar
blítt við hann, hjálpar honum á fætur, þerrar blóð.
Voða óþokki ertu, segir hún við þann sem sló, elskandann sem stend-
ur lémagna, fangaður af kerlingunni með skuggann. Skammastín, seg-
ir hún líka.
Honum finnst hann kafna, kemur ekki upp neinu hljóði, brjóstið á
honum er að rifna af einhverjum furðulegum og voðalegum sársauka.
Og honum finnst fallega stúlkan hróplega ranglát. En hvernig á hann
að skýra fyrir henni að hann ætlaði alls ekki að meiða drenginn, hann
átti ekkert sökótt við hann og hann var svo aumur að það var ekki
ómaks vert að vera að berja hann. Honum býður við því að hafa gert
það, og blóðinu og mólkinni. En hann getur ekkert sagt sér til máls-
bóta og þó hlaut hún að vita að hann varð að slá hann og að hann
gerði það alls ekki af óþokkaskap heldur einhverju allt öðru.
Og meðan hugsanirnar malast í höfðinu á honum svo hann sárkvelst
hefur kerlingin með skuggann dregið hann með sér og afhent hann
móður hans með einhliða ákæru.
Ekki stendur á refsingu. Hann er barinn án málflutnings. Og þegar
faðirinn kemur heim uppfyllir hann líka sína föðurlegu skyldu til refs-
ingar og yfirheyrslu.
Af hverju gerðir þú þetta? Hvað áttirðu sökótt við drenginn?
Ekkert.
Högg. Af hverju?
Þögn.
Viltu svara? Högg.