Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 7

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Side 7
> villimenn og siðleysingjar eða eitthvað ennþá verra. Ég hef líka fengið minn skerf af svívirðingum. Samt trúi ég því enn — kannski er ég tilneyddur — að mögulegt sé að koma á gagnkvæmum skilningi, án þess að varpa tjáningarfrelsinu fyrir róða. Til þess þarf jákvætt hugarfar; við þurf- um öll að fallast á að aðrir aðilar málsins komi fram, og hafi komið fram, í góðri trú. Ég er nefnilega þeirrar skoðunar að bara ef við gætum fallið frá ásökuninni um „dónaskap og níð“, sem kemur í veg fyrir að þeir sem á hana trúa viðurkenni Söngva Satans sem metnaðarfullt eða merkilegt verk af einhverju tagi, þá gætum við að minnsta kosti komið okkur saman um að hafa ólíkar skoðanir á því sem raunveru- lega stendur í bókinni, á umdeildu ágæti hins heilaga og hins jarðneska, á því hvers virði hreinleikinn eða hrærigrauturinn er, og á því hvernig manneskjur verða heilar: með því að tilbiðja Guð eða með því að unna sínum meðbræðrum og -systrum. Og til að ljúka þessari röksemdafærslu verðum við að víkja um stund aftur að bókinni eins og hún er, ekki bókinni eins og henni hefur verið lýst í ýmsum áróð- ursritum sem dreift hefur verið til sann- trúaðra, ekki „ólæsilegum“ texta goðsög- unnar, ekki tveimur köflum sem kippt hefur verið út úr heildinni; ekki bita af rengi heldur öllum aumingja hvalnum. Ég tek fram áður en lengra er haldið: ég hef aldrei litið á þennan ágreining sem baráttu vestræns frelsis og austræns ófrelsis. Með réttu hrósa menn sér af frelsinu á Vesturlöndum, en margs konar minnihlutahópum finnst með jafn miklum rétti þeir vera útilokaðir frá því að nýta sér þetta frelsi að fullu — vegna kynþáttar, kynhneigðar, stjórnmálaskoðana; á hinn bóginn þekki ég af ævilöngum kynnum mínum af Austurlöndum, fráTyrklandiog Iran til Indlands og Pakistans, að fólk þar um slóðir er fullt eins ákafir talsmenn frelsis og hvaða Tékki, Rúmeni, Þjóð- verji, Ungverji eða Pólverji sem er. Hvemig öðlast menn frelsi? Menn taka sér það: það er aldrei gefið. Til að verða frjáls, verður maður fyrst að ganga út frá því að maður hafi rétt á frelsi. Þegar ég skrifaði Söngva Satans gekk ég út frá því að ég hefði verið, og væri, frjáls maður. Hvað er tjáningarfrelsi? Án frelsis til að hneyksla hættir það að vera til. Án frelsis til að ráðast gegn, jafnvel hæðast að hvers konar fyrirskipuðum sannleika, m.a. af trúarlegum toga, hættir það að vera til. Ef tungan og ímyndunaraflið eru hneppt í fjötra deyr listin, og þar með svolítið af því sem gerir okkur að manneskjum. Söngvar Satans eru, að hluta til, uppgjör trúleysingja við trúarandann. „Ef við skrifum á fordómafullan hátt um trúmál eins og þau séu eins konar blekking eða fals, gerum við okkur þá ekki sek um hroka, um að þröngva okkar lífsskilningi upp á fjöldann?“ spyr einn Indverjinn í sögunni. Samt sem áður býr sagan yfir efasemdum, óvissu, jafnvel hneykslunar- efnum sem trúuðu fólki kann að vera á móti skapi. Slíkar aðferðir hafa samt sem áður lengi verið viðurkenndur þáttur í bókmenntum, meira að segja Islams. Hverju andæfir skáldsagan? Alltént ekki trúfrelsi fólks, enda þótt ég sé trú- laus. Hún andæfir hvað greinilegast fyrir- skipuðum rétttrúnaði af öllu tagi, því viðhorfi að veröldin sé alveg greinilega Þetta og ekki Hitt. Hún andæfir enda- lokum rökræðunnar, deilunnar, andófs- TMM 1990:2 5
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.