Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 87

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 87
um. Var eitthvað að hrynjandinni, mynd- málinu eða þeirri stíltegund sem kvæðið var ort í? Ymsir heimspekingar hafa bent á að finna megi röktengsl milli hugtaksins „ástæða“ annars vegar og hugtaksins „rök“ hins vegar.1 Að tilgreina ástæðuna fyrir því að maður hafi tiltekna skoðun er sumpart að rökstyðja hana. En heilbrigð skynsemi segir okkur að ekki hvaðeina geti talist góð og gild ástæða fyrir tiltek- inni skoðun. Segi vinkona vor að henni líki kvæði X af því að bróðir hennar orti það, á hún hrós skilið fyrir einlægni en ekki rökvísi. Hún hefur nefnilega misskil- ið eðli fagurfræðilegra dóma, en í slíkum dómum ber að nefna til sögunnar meintar eigindir listaverka. Ef við þrengjum ekki merkingu hugtaksins „fagurfræðilegur dómur“ með þessum hætti er hætt við að hugtakið taki að merkja allt og ekkert og verði því inntakslaust. Ljóst er að fjöl- skyldutengsl skáldsins eru ekki eigindir kvæðisins og því er „rökstuðningur“ kon- unnar fyrir dómi sínum um kvæðið út í hött. En mér sýnist að rökstuðnings sé fremur þörf í umfjöllun um listastefnur en einstök listaverk. Þegar nýstefnan kom fram æpti hún beinlínis á rökstuðning. Það þurfti að rök- styðja að þessi framandlega list bæri nafn með réttu, væri list í raun og sannleik. Segja má að á byltingarskeiðum í listum sé rökfærsla mikilvægari en ella og í þessu sambandi getum við lært af Thom- asi Kuhn. Alla jafna ríkir samkvæði um vísindaleg viðmið (,,paradigma“) sem vísindamenn vinna eftir. Venjubundin vísindamennska minnir fremur á hand- verk en heimspeki. Vísindamennirnir ef- ast ekki um meginreglur fræða sinna, segir Kuhn. En á byltingarskeiðum eru forsendur fræðanna endurmetnar og „byltingarforingjarnir" réttlæta nýjar hugmyndir með rökum sem minna á heimspekilega rökfærslu. Það er tæpast tilviljun að flestir frumherja nútíma eðlis- fræða skrifuðu heimspekirit í frístundum. Og það er heldur ekki tilviljun að frum- kvöðlar nýstefnu réttlættu margir hverjir amstur sitt í stefnuskrám, sem ýmist voru kenndar við súrrealisma eða fútúrisma. En á tímaskeiðum þess sem ég kýs að kalla „venjulistir“ þegar sættir ríkja um meginreglur, líkist umfjöllun um listir meir boðskiptum handverksmanna en rökræðum heimspekinga. „Venjulist“ nota ég um það sem ég tel vera listræna hliðstæðu þess sem Kuhn kallar „hefða- fræði“ (e. normal science). Á tímum hefðafræði vinna menn eftir ákveðnum forskriftum og fyrirmyndum, Kuhn talar um „viðmið“. Kalla má rímnahefðina „venjulist“ því hún einkennist af gefnum forskriftum. Jónas Hallgrímsson er þá byltingarlistamaður meðal annars vegna þess að hann færir skipuleg rök fyrir því að rímumar eigi ekki rétt á sér lengur. Til að skýra betur hvað ég á við með „venjulist“ skulum við ganga í smiðju til heimspekingsins Ludwigs Wittgensteins. Hann lýsir því hversu hlutstæð umfjöllun um listir getur verið. Við tökum dæmi og berum listaverk saman, sýnum fremur en segjum. Og tónskáldið sest við píanóið og sýnir hvernig leika beri ákveðið verk rétt eins og handverksmaður sem sýnir hvem- ig vinna beri ákveðið verk. Við þurfum ekki á hugtökum eins og „fallegt“ að halda, okkur nægir að sýna hvernig okkur finnst að listaverk eigi að vera.‘ „Sérðu hve miklu betra kvæðið hefði orðið ef TMM 1990:2 85
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.