Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 107

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1990, Page 107
Ritdómar Góðar stundir Ingibjörg Haraldsdóttir: Nú eru aðrirtímar. Mál og menning 1989. Hvers vegna er ég hér og nú en ekki þar og þá? Spurningar um tilvist og tíma eru einhver flóknustu verkefni sem heimspekingar kom- ast í. En þeir eru ekki einir um hituna, skáld leggja þeim oft lið og koma þá gjarnan að viðfangsefninu úr annarri átt, reyna að lýsa þeirri upplifun manneskjunnar að hrekjast um í tíma og rúmi. Hrekjast er rétta orðið því það er eins og þessum skáldum sé sameiginlegt að vera ekki í fullkominni sátt við tímann, heldur farast á mis við hann: Svo rís um aldir árið hvurt um sig eilífðar lítið blóm í skini hreinu; mér er það svo sem ekki neitt í neinu því tíminn vill ei tengja sig við mig. orti Jónas Hallgrímsson og það er stutt í þung- lyndið. Því hvað er nöturlegra en að vera tímaskekkja í tilverunni? Varðar mann þá nokkuð framar um heiminn? Lokalínu þessa erindis hefur Ingibjörg Haraldsdóttir valið sem einkunnarorð ljóðabókar sinnar og í glímunni við mótsagnir tilveru og tíma kemst hún að svipaðri niðurstöðu og Jónas sem vildi heldur „kenna til og lifa“ en láta hart mæta hörðu. Ingibjörg hafnar þeirri lausn að láta heiminn lönd og leið. „Láttu samt sólina koma þér við“ segir hún, þótt farir þínar verði krókóttar („Farir"). Það er við hæfi að ljóðin í bókinni eru gjarnan sett á svið innan ramma sólarhrings- ins. Þegar skáldið mælir er kvöld, nótt eða dagur, svo við erum sífellt minnt á tímann. Og það fjallar um andstæður draums og hvers- dagsleika, skáldskapar og veruleika sem hér minna einatt á mismun dags og nætur. Nóttin býr í senn yfir ógn og yndi en dagurinn er hvunndagur, eiginlega reykvísk rúmhelgi. ís- land er úthverfur veruleikinn meðan fjarlæg lönd búa í draumunum og minningunni, eins og t.d. má lesa í ljóðinu „Breiðholt": Einhver önnur en ég gæti átt þessa úthverfu daga: (...) Meðan ég lægi nakin og innhverf og umlukin hafi eða sandi eða gegnsæjum fjarlægðarbláma (...) Auk tímans, má með leiðinlegri einföldun segja að Ingibjörg fáist aðallega við tvö yrkis- efni í þessari bók. Annars vegar deilir hún á yfirborðsmennsku og fals, bæði á „opinber- um vettvangi“, eins og sagt er, og í sam- skiptum manna. Innantóm orð í gestaboði, blekkingar Mogga og uppgerð spjátrunganna á kaffihúsinu — allt er þetta fyrirlitlegt því TMM 1990:2 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.