Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Síða 25
Trúarskáld
Síra Valdimar tók stúdentspróf 30. júní 1869 með I. einkunn.
Næsta vetur kenndi hann skólalærdóm heima í Hruna, en settist í Presta-
skólann haustið 1870, og lauk prófi þaðan 3. september 1872 með I. einkunn,
og loflegum vitnisburði um góðar gáfur, skarpan skilning, reglusemi og sið-
prýði.
Margir af skólafélögum Valdimars urðu síðar þjóðkunnir. í því sambandi
er fróðlegt að geta nokkurra bekkjarbræðra Valdimars: Björn Jónsson, síðar
ritstjóri og ráðherra, Björn Magnússon Olsen prófessor, síra Jón Jónsson pró-
fastur og fræðimaður á Skaftafelli í Lóni og Jón Olafsson ritstjóri og skáld,
bróðir Páls Ólafssonar skálds.
A námsárunum tók Valdimar mikinn þátt í félagsmálum bæði með skóla-
félögum sínum og utan skóla. Valdimar var í miklum metum meðal skólafé-
laganna, höfðu þeir með sér félag, sem nefnt var Bandamanna-félagið.
Bandamanna-félagið gaf út blað er bar nafnið Fjölsvinnur.
Jón Ólafsson ritstjóri minnist þessa í æviágripi Kristjáns Jónssonar skálds,
sem finna má í útgáfu kvæða Kristjáns árið 1911.
Par nefnir hann einnig Kvöldfélagið, er svo var kallað. Félagsmenn þess,
er komu víða að úr þjóðfélaginu, héldu með sér fundi vikulega og ræddu m.a.
bókmenntir, listir og ýmis dægurmál.
Auk Valdimars er rétt að geta hér um nokkra félaga Kvöldfélagsins, svo
sem Jón Ólafsson, Gísla skólakennara Magnússon, síra Matthías Jochumsson,
Sigurð málara Guðmundsson, síra Eggert, bróður Valdimars, síra Eirík Briem,
síra Jón Bjarnason, síðar í Winnipeg og Jón Arnason bókavörð í Reykjavík,
þjóðsagnasafnara.
Þegar síra Valdimar hafði lokið embættisprófi frá Prestaskólanum stund-
aði hann kennslustörf í Reykjavík veturinn 1872-1873.
Sótti hann þá um Hrepphólaprestakall og var veitt kallið 21. febrúar 1873
og vígðist hann þangað 27. apríl sama ár.
Síra Valdimar Ólafsson Briem, gekk að eiga Ólöfu Briem dóttur þeirra
prestshjónanna í Hruna, þá nývígður prestur að Hrepphólum.
Síra Jóhann Briem í Hruna gifti þau þann 12. júní 1873, ásamt öðrum
brúðhjónum, síra Steindóri syni sínum og Kamillu Hall, brúði hans.
Þau hjónin, síra Valdimar og frú Ólöf, áttu tvo sonu. Eldri sonurinn, Jó-
hann Kristján, f. 17. ágúst 1874, var mikill ágætismaður, hvers manns hug-
ljúfi, mikill námsmaður og talinn gott efni í skáld, hann lést á meðan hann
var enn við nám í IV. bekk Lærða skólans í Reykjavík, árið 1892. Yngri son-
urinn Ólafur, f. 5. okt. 1875, var einnig mikill ágætismaður og góður náms-
og hæfileikamaður, auk þess var hann skáldmæltur vel. Lést hann á miðri
starfsævi, árið 1930, nokkrum dögum fyrir andlát föður síns síra Valdimars.
23