Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Síða 46
Rósa B. Blöndals
Sálmurinn -1 Jesú nafni áfram enn með ári nýju, kristnir menn, - er mjög
fagur nýárssálmur eftir síra Valdimar. Og hljómar fagurlega á eftir gamlárs-
sálminum -
Nú árið er liðið í aldanna skaut.
Versið, sem hér fer á eftir, hefur verið mörgum sorgbitnum manni hugg-
un.
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom dögg, og svala sálu nú,
kom sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
Kom, eilífð, bak við árin.
Síra Sigurbjörn Ástvaldur Gíslason sagði mér í einkaviðtali, að þegar hann
missti eiginkonu sína og tvær dætur þeirra í Tungufljót, þá svaraði hann öll-
um svíðandi og áleitnum spurningum sorgarinnar með þessum tveimur
sálmslínum síra Valdimars.
Ég fel mig þinni föðurnáð,
minn faðir elskulegi.
Aðventusálmar
Slá þú hjartans hörpustrengi. Sálmurinn hefur svo fagra hrynjandi, að hann
syngur sig sjálfur. Fjögur áttalínu vers.
1. v. Slá þú hjartans hörpustrengi,
hrær hvern streng, sem ómað fær.
Hljómi skært og hljómi lengi
hósíanna nær og fjær.
Hvert þitt innsta æðarslag
ómi’ af gleði þennan dag.
Konungurinn konunganna
kemur nú til sinna manna.
4. v. Líknarár hann enn þá gefur,
ár, sem háð ei breyting er,
ár, er sumar ávallt hefur,