Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Page 83
Trúarskáld
ið kom út í fullri stærð birtust þar allmörg fögur trúarljóð eftir síra Valdimar,
bæði frumsamin og einnig virðast þeir hafa haldið mikið upp á Davíðssálma-
þýðingar skáldsins. Þá hafa ritverk og greinar birst eftir síra Valdimar um það
bil í 30 blöðum og tímaritum hérlendis, svo sem þó einkum í Verði Ijós,
Kirkjublaðinu gamla og Nýju kirkjublaði, en einnig er rétt í því tilefni að nefna
Almanak Þjóðvinafélagsins, nokkrar árbækur, Ljósberann, Bjarma, Eimreið-
ina, Fjallkonuna, Frœkorn, Isafold, Lögréttu, Oðin, Prestafélagsritið og
Þjóðólf. í þeim blöðum hafa birst yfir hundrað helgiljóð og sálmar, auk ým-
issa annarra sálma og helgiljóða, er birst hafa eftir skáldið við ýmis tækifæri.
Sem dæmi má nefna 6 erinda erfiljóð eftir Stefaníu Melsteð frá Klausturhól-
um í Grímsnesi, er birtist í bók um hana er Bogi Th. Melsteð, bróðir hennar
gaf út og lét prenta í Kaupmannahöfn árið 1926. Bók Boga er 71 bls. Þá orti
síra Valdimar erfiljóð eftir Grím Thomsen, er birtist í Lögbergi, öðru tölublaði
árið 1897, svo nokkuð sé nefnt.
Víða hafa birst eftir síra Valdimar, sálmar og helgiljóð, auk alls þess er
komið hefir út eftir hann í óbundnu máli.
Einnig er getið um leikrit eftir hann, fimmþáttung í 80 blaðsíðna bók er
gefin er út af Almenna bókafélaginu í desember 1972, sem jólabók A.B. og
ber nafn leikritsins, í jólaleyfinu. Þá er rétt að geta hér annars gáskafulls leik-
rits, er hann samdi í félagi við tvo skáldbræður sína þá Kristján Jónsson,
Fjallaskáldið, og Kristján Eldjárn Þórarinsson, síðar prest að Tjörn í Svarf-
aðardal á skólaárum þeirra. Mun það leikrit ekki hafa verið prentað.
Síra Jónas A. Sigurðsson gat um það hvernig og með hvaða skáldverki,
helgiljóðagerð síra Valdimars muni hafa byrjað, í títtnefndu erindi er hann
flutti á kirkjuþingi vestra og birtist í Sameiningunni, ágústhefti árið 1923:
Þá hafði síra Jón Bjarnason séð nokkur Biblíuljóðanna og hafði auðsjáanlega
mjög hrifist af þeim. Þar getur hann einnig þess fyrsta er hann telur liggja eftir
síra Valdimar Briem af helgiljóða kveðskap: „Hann hóf sín trúarljóð með hinum
fögru eftirmælum eftir skólabróður sinn Helga Melsteð. Vér höfum þau ljóð enn
fyrir oss frá 1872.
Árið 1923 kom út stuttur þýddur kvæðaflokkur, Týndi sonurinn (Den
forlorne sön), 53 ljóð á 75 bls. Höfundur var norski presturinn síra Jonas Dahl.
Yrkisefnið er byggt á dæmisögunni um týnda soninn, en látið gerast á dög-
um skáldanna. Þessi ljóðaflokkur mun vera það síðasta, sem síra Valdimar læt-
ur eftir sig í bókarformi.
Má telja að helgiljóð og sálmar síra Valdimars muni vera nálægt níu hund-
ruð talsins og taki yfir tæpar nítján hundruð blaðsíður.
Eftir síra Valdimar liggur fjöldi einstakra kvæða, bæði þýdd og frumsam-
in, mörg þeirra hafa birst í blöðum og tímaritum, en allmörg kvæðanna hafa
81