Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Blaðsíða 96
Rósa B. Blöndals
en eilíflega birtu ber!
Þú votta þína valið hefur
og visku þeim og krafta gefur;
þeir fá sitt ljós og líf frá þér.
Gef þeim um landið ljós að vera
og lof og prís þinn opinbera,
svo dýrð þín megi’ ei dulist fá.
Þeim lát þú ætíð ljós þitt skína,
og lát þú dygga hirða þína
í ljósi þínu ljósið fá.
Biskupsvígslusálmana alla hefir ort síra Valdimar prófastur Briem, og lög við tvo
þeirra, III og IV, samið Sigfús Einarsson; þau þykja hafa tekist mikið vel. Kafli
úr III. sálmi er einsöngur: Sjá hjarðirnar breytast., 4 línur og söng hann yngis-
mær Elín Matthíasardóttir.
Vígsluathöfnin er almenningi þegar kunn af hinum stærri blöðum, sem oftar
eru á ferðinni, og sum hver þeirra hafa og flutt vígsluljóð síra Valdimars. Rétt
þykir þó að N. kbl. geymi allt sem að þessum viðburði lýtur. Lýsingin á athöfn-
inni er tekin að mestu orðrétt úr því blaðinu (ísafold), sem rækilegast sagði frá.
Vígsluljóðin
Auk vígsluljóðanna sem sungin voru í kirkjunni, og N. kbl. birti síðast, er enn
vígslusálmur eftir síra Valdimar.
Því var svo varið að síra Valdimar var beðinn að yrkja þrískiftan söngflokk til
vígslunnar, og þess getið að ánægjulegast væri að fá samin lög við um leið, en
jafnframt talin ýmis tormerki á því, að þess mundi kostur. Síra Valdimar yrkir þá
tvenn vígsluljóð, þrískift, var annar flokkurinn undir kunnum hátíða-lögum, en
hinn með nýjum bragháttum, eigi lagsettum. Nú vannst tónskáldinu herra Sig-
fúsi Einarssyni tími til að semja lög við tvö ljóðin í þeim flokknum, og var þeim
þá aukið við söngvana í kirkjunni, og mun tónskáldið væntanlega innan langs tíma
gefa almenningi kost á að sjá þau lög á prenti. Eftir var þá einn sálmurinn sem
eigi var farið með, og kemur hann í næsta blaði. Höfundurinn hafði hugsað sér
hann á eftir vígslunni. Nú bíður hann lagsins, og spá þeir því, sem betur kunna,
að biðin verði eigi löng.
Vígsluljóð
Sól skín á fjöll, þó er höfgi’ á Guðs hjörð.
Hver mun þá vekja’ hana’ af dvala?
Heyrirðu’ ei hanana gala?
Lúðurinn þeyta Guð lætur sinn vörð,
94