Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Síða 123
Trúarskáld
Eftirmáli
Fyrir all mörgum árum, las ég upp úr Biblíuljóðum síra Valdimars Briem,
nokkur skipti í Ríkisútvarpið. Þá varð ég vör við að Biblíuljóð síra Valdimars
áttu miklum vinsældum að fagna meðal þjóðarinnar. Fékk ég á þeim tíma upp-
örvun og þakklæti fyrir lesturinn á ljóðum síra Valdimars. Kom þá einnig fram
hjá hlustendum mínum mörgum, að þeir söknuðu þess að ekki skyldi hafa ver-
ið fjallað meira um skáldið og verk hans. M. a. kom góður kunningi okkar
hjóna, Hörður Ágústsson, listmálari, að máli við mig með kveðju frá tengda-
föður sínum, Magnúsi Skaftfjeld, og bað hann innilega að heilsa mér með
þakklæti fyrir lestur minn á Biblíuljóðum síra Valdimars Briem. Bað hann
Hörð að skila því sérstaklega til mín að hann skoraði á mig að skrifa um síra
Valdimar Briem, verk hans og æviferil.
í ritgerðinni hér að framan er aðallega leitast við að kynna þá fjölbreytni
er einkennir ljóðagerð skáldsins og einnig að skyggnast nokkuð inn í þá djúpu
speki og það hugarflug, er verk hans lýsa. Þá er getið að nokkru mikilla af-
kasta síra Valdimars.
Auk síra Jóns Bjamasonar, ritstjóra Sameiningarinnar, urðu margir Vestur-
íslendingar til að veita síra Valdimar verðuga umfjöllun og eru ritverk þeirra
ómetanleg heimild seinni tíma kynslóðum. Einn þeirra var síra Jónas A.
Sigurðsson. Þannig hóf síra Jónas mál sitt er hann ávarpaði kirkjuþing Vestur-
íslendinga og birtist erindið í ágústhefti Sameiningarinnar árið 1923:
í kvöld eru orð mín um einn þann mann, meðal lifandi Islendinga, er kirkjan
og kristindómurinn hefir gjört tvígildan öndvegishöld.
í Sameiningunni, janúarhefti árið 1891 skrifaði síra Jón Bjarnason ritstjóri
Sameiningarinnar fagra og fróðlega grein um síra Valdimar Briem og skáld-
skap hans, m. a. Sálmabókina 1886. Þá hafði síra Jón séð nokkur Biblíu-
ljóðanna og hafði auðsjánlega hrifist mjög af þeim. Þar getur hann einnig þess
fyrsta er hann telur liggja eftir síra Valdimar Briem í helgiljóðakveðskap:
Hann byrjaði sín trúarljóð með hinum fögru eftirmælum eftir skólabróður sinn
Helga Melsted. Vér höfum þau enn fyrir oss frá 1872.
Má telja að helgiljóð og sálmar síra Valdimars muni vera nálægt níu
hundruð talsins og taki yfir tæpar nítján hundruð blaðsíður.
Það síðasta, er út kom í bókarformi eftir síra Valdimar Briem, mun hafa
verið ljóðaflokkurinn Týndi sonurinn. Ljóðaflokkurinn er 53 ljóð á 75 bls.
Þýddur úr norsku, höfundur er skáldið síra Jonas Dahl.
121