Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Síða 165
Konurnar í Gamla testamentinu
beldis sem konur þola nú á dögum.46 Hér á eftir verða skoðaðar þrjár þess-
ara frásagna; sagan af Tamar í 13. kafla 2. Samúelsbókar; sagan um glæpinn
gegn nafnlausu konunni úr 19. kafla Dómarabókarinnar; og sagan um dóttur
Jefta úr Dómarabókinni 11. kafla. Fyrst er sagan af prinsessunni Tamar.47
Nauðgun Tamar
Þessi saga sem er í 13. kafla 2. Samúelsbókar segir frá dóttur Davíðs kon-
ungs, sem nauðgað er af bróður sínum Amnon.48 Sagan skiptist í þrjá hluta:
í fyrsta hlutanum, versum 1-9, er kynning á aðstæðum. Þátttakendum er lýst
og sviðssetningu glæpsins. Þar segir fyrst frá því að Amnon sonur Davíðs hafi
ágirnst hálfsystur sína. Jónadab, vinur hans, ráðlagði honum að leggjast í rúm-
ið og látast vera veikur, og biðja síðan föður sinn að láta Tamar koma til þess
að gefa sér að borða. Þetta gengur eftir og Davíð konungur sendir Tamar til
þess að fara og búa til mat fyrir bróður sinn. Þá hefst annar hluti sögunnar,
þar sem sjálfum glæpnum er lýst. Þegar Tamar hefur lokið við matreiðsluna,
lætur Amnon reka alla út frá sér og fær síðan systur sína til þess að koma með
matinn inn í svefnhúsið þar sem hann hyggst matast. Þar kemur Amnon vilja
sínum fram á Tamar og nauðgar henni. Áður en honum tekst það reynir Tam-
ar að tala um fyrir honum. I 12.-14. versi er sagt frá viðbrögðum Tamar:
En hún sagði við hann: „Nei, bróðir minn, svívirð mig eigi, því að slíkt viðgengst
ekki í Israel. Frem þú eigi slíka óhæfu. Og hvað ætti ég af mér að gjöra með van-
sæmd mína? Og þú mundir talinn eitt hið mesta varmenni í ísrael. Tala þú held-
ur við konung, því að hann mun ekki synja þér um mig.“ En hann vildi ekki hlýða
orðum hennar, heldur lét hana kenna aflsmunar og nauðgaði henni og lagðist með
henni.
Hlýtur að teljast athyglisvert hversu mikla yfirvegun Tamar sýnir undir
þessum kringumstæðum. I orðum sínum vísar hún til hefðarinnar, en ekki eig-
in tilfinninga. Það er ljóst að hún hefur ekki vald yfir eigin líkama, heldur,
eins og hún bendir bróður sínum á, hefur faðir hennar einn rétt á að ráðstafa
46 Trible, 1-2.
47 Hér er á ferðinni önnur Tamar en sú sem sagt er frá í 1M 38. Þar segir frá samskiptum Tamar
og Júda tengdaföður hennar, sem var einn af sonum Jakobs.
48 I umræðunni um ofbeldi gegn konum sem farið hefur fram á síðustu áratugum hefur sagan af
Tamar, dóttur Davíðs konungs, fengið sérstakan sess, sem dæmigerð lýsing á því grófa ofbeldi
sem margar konur hafa búið við um aldir. I bókinni The Cry ofTamar. Violence Against Women
and tlie Church's Response, notar höfundurinn, Pamela Cooper-White, söguna um Tamar sem
útgangspunkt fyrir umfjöllun sína um ofbeldi gegn konum og æskileg viðbrögð kirkjunnar gagn-
vart þeim raunveruleika.
163