Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Page 186
Arni Svanur Daníelsson
skipan. Fyrir þeim stóðu m.a. Andreas Bodenstein von Karlstadt, vinur Lúth-
ers og samkennari hans við háskólann í Wittenberg, og Gabriel Zwilling,
ágústínusarmunkur og reglubróðir Lúthers sem var leiftrandi prédikari og
hafði lag á því að æsa fólk upp. Þeir félagar gengu hratt fram og e.t.v. nokk-
uð harkalega á köflum. Lúther var í meginatriðum ekki ósáttur við breyting-
ar þeirra, en hann var aftur á móti allsendis ósáttur við aðferðina sem þeir
beittu við að koma þeim umbótum á, asann sem fylgdi þeim, og þá tilhneig-
ingu þeirra að gera breytinguna að lögmáli. Hann taldi fremur vænlegt að taka
sér tíma, vildi að menn flýttu sér hægt. Réttlæting af trú er róttæk kenning
sem hefur róttækar afleiðingar fyrir líf safnaðarins, hún losar um bönd á sam-
visku mannanna með því að vísa þeim frá lögmálinu og sjálfum sér og á Krist.
Lúther var ætíð umhugað um þær sálir sem hann bar ábyrgð á og vildi því
fara rólega í sakirnar í sambandi við breytingar, til að allir fengju tækifæri,
til að skilja hvað um væri að ræða og laga sig að því. Aðferð Lúthers sjálfs
við að koma á breytingum var einföld, hann vildi prédika þær þannig að fólk-
ið gæti gert breytingarnar að sínum og síðan sjálft látið til skarar skríða.
Vegna umrótsins sem þeir Karlstadt og félagar orsökuðu kaus Lúther að
snúa aftur frá Wartburg í byrjun mars 1522, en í Wartburg hafði hann verið í
felum frá ríkisþinginu í Worms 1521. Hann kom til Wittenberg þann 6. mars.1
Þremur dögum síðar steig hann í stólinn og prédikaði næstu átta daga hinar
svokölluðu Invocavit prédikanir.2 í þeim útskýrði hann afstöðu sína til breyt-
inganna sem höfðu verið gerðar, gerði grein fyrir sýn sinni á afleiðingar rétt-
lætingarkenningarinnar í lífi safnaðarins og áminnti menn um að virða frelsi
kristins manns. Með Invocavit prédikununum kom Lúther ró á söfnuðinn, ör-
fáar breytingar gengu til baka, en aðrar fengu að halda sér og siðbótin hélt
áfram.
Hugmyndir og viðhorf Lúthers til breytinga á kirkjusiðum eins og þau birt-
ast í þessum prédikunum mynda brennipunktinn í umfjöllun minni hér í þess-
ari grein. Til skilnings á prédikununum er þó nauðsynlegt að gera grein fyr-
ir þeim atburðum sem leiddu til þess að þær voru fluttar sem og því hvernig
tekið var við þeim. Það er vert að hafa í huga að viðhorf Lúthers og aðferð
hans við að koma á breytingum og þau málefni sem hann tekur fyrir í pré-
dikunum skipta máli enn í dag og margt af því sem hann segir á erindi við
samtímann.
1 Hugsanlegt er að hann hafi verið kominn deginum áður.
2 Invocavit er heiti 1. sunnudags í föstu og prédikanirnar voru fluttar í 1. viku föstunnar.
184