Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2000, Page 195
Invocavit prédikanir Lúthers
Hann ber því fyllsta traust til íbúa Wittenberg, en telur þá þurfa nánari leið-
sögn og leiðréttingu á stefnunni.
Segja má að þetta séu í grófum dráttum þær reglur sem Lúther vill styðj-
ast við þegar einhverju á að breyta og raunar í lífi kristins einstaklings og sam-
skiptum hans við aðra. Hvað varðar nánari framkvæmd breytinga segir Lúth-
er að í engu tilviki megi beita valdi eða afli og engan megi neyða heldur eigi
að nota rit og ræðu til uppfræðslu og prédikunar. Endanlega er það svo Guð
sem kemur breytingunum á:35
Það er ekki í mínu valdi að móta hjörtu manna að minni vild [Sír. 33.13] [...].
Ég kemst ekki lengra en að eyrum þeirra, í hjörtum kemst ég ekki. Og þar sem
ég get ekki úthellt trú í hjörtu þeirra, get ég hvorki né ætti að knýja neinn til að
taka trú. Það er verk Guðs eins, sem gerir trúna lifandi í hjartanu. Því ættum við
að leyfa Orðinu að starfa óheftu og ekki bæta okkar verkum við það. Við höfum
ius verbi [réttinn til að tala] en ekki executio [máttinn til að framkvæma]. Við
ættum að prédika Orðið, en Guð einn kallar fram ávexti þess.36
Sé hjartanu breytt þá fylgir allur maðurinn með, en ef hjartað er óbreytt þá
gildir ytra atferli lítið. Eina leiðin til að breyta hjörtunum er að prédika fagn-
aðarerindið, en jafnvel þá, er prédikarinn bara sem tæki í höndum Guðs. Guð
kallar því manninn til trúar og þá getur breytingin komið innan frá mannin-
um. Lúther segir og að ekki megi breyta nema öll hjörtu séu sammála.37 Að-
ferðin sem beita á við að koma á breytingum er því sú að prédika, kenna,
skrifa og leyfa síðan Orði Guðs að vinna sitt verk.38 Eins og Lúther segir:
Ég var á móti aflátum og öllum pápistunum, en beitti aldrei afli. Ég kenndi bara,
prédikaði og skrifaði Orð Guðs; en annars gerði ég ekkert. Og meðan ég svaf eða
drakk bjór frá Wittenberg með vinum mínum Filippusi og Amsdorf, veikti Orð-
ið páfadóminn svo rækilega að enginn fursti eða keisari hefur nokkurn tímann
unnið annað eins tjón á honum. Ég gerði ekkert, Orðið gerði allt. Hefði ég vilj-
að skapa vandræði, hefði verið auðvelt að efna til mikilla blóðsúthellinga í Þýska-
landi, í raun hefði ég getið komið svo miklum látum af stað að jafnvel keisarinn
sjálfur hefði ekki verið öruggur.39 En hvað hefði það verið? Bjánaskapur einn.
Ég gerði ekkert, en leyfði Orðinu að vinna sitt verk. Hvað heldur þú að djöfull-
inn hugsi þegar við reynum að koma einhverju áleiðis með látum? Hann situr í
helvíti og hugsar: Ó, hvaða gleðileik eru blessaðir bjánarnir í núna! En þegar við
útbreiðum Orðið eitt og leyfum því einu að vinna verkið, verður hann órólegur.
34 WA 10 III, 8 (1. Invocavit prédikun). LW 51, 72-73.
35 WA 10 III, 13-15 (2. Invocavit prédikun). LW 51, 75-76.
36 WA 10 III, 15 (2. Invocavit prédikun). LW 51, 76.
37 Þessar hugmyndir Lúthers eru góðar og gildar sem almennar reglur. En spyrja má hversu
langt þær ná. Ef til vill er helsti vandinn við þær sá að hann lætur mönnum ekki í té mæli-
kvarða til að svara spurningum svo sem hversu sammála menn þurfi að vera.
38 WA 10 III, 18-19 (2. Invocavit prédikun). LW 51, 77.
193