Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Page 58
H j a l t i H u g a s o n 58 TMM 2013 · 4 vægðarlausri og djarfri sjálfsskoðun þess sem annað tveggja veit sig hafa brotið gegn öðrum, einstaklingum eða samfélaginu, eða er sakaður um að hafa gert það. Af fullri hreinskilni beitir hann sig vægðarlausri sjálfsgagn- rýni, gaumgæfir verk sín og athæfi og flýr ekki af hólmi fyrir því sem hann eða hún sér. Þegar um raunverulegt brot eða yfirsjón er að ræða, heiðarlegt uppgjör og félagslega heilbrigðan einstakling vaknar samviskan, eftirsjá, sorg eða sektarkennd segir til sín og einstaklingurinn heldur yfir sér dóm sem getur orðið skefjalaus sé brotið alvarlegt. Á máli guðfræðinnar kallast þetta iðrun en á hefðbundnu málfari kirkjunnar contritio cordis eða sundur- kramning hjartans. Hér er vísað til djúps sálfræðilegs og tilfinningalegs veruleika sem leitt getur til sárra andlegra kvala. – Þetta stig iðrunarferlisins er ekki takmark í sjálfu sér enda getur það leitt til alvarlegs niðurbrots með langvinnum afleiðingum sé staðar numið á því. Það er þess vegna aðeins undanfari uppbyggilegs uppgjörs en leiðir í mörgum tilvikum til sjúklegs ástands haldi einstaklingurinn ekki áfram á iðrunargöngu sinni. Annað stigið er ekki sálfræðilegt heldur félagslegt. Það felst í því að sá sem gengist hefur á hólm við sjálfan sig lýsir niðurstöðu sinni með orðum og upplýsir samfélagið þar með um verk sín og gjörðir en jafnframt það mat sitt að honum eða henni hafi orðið á. Í þessu getur falist játning á lögbroti eða glæp en einnig afstæðari brotum t.d. að viðkomandi hafi gert eitthvað sem telst löglegt en siðlaust og þar með sagt sig á opinn eða dulinn hátt úr lögum við samfélagið. Þetta er stig opinberunar eða játningar, stund sannleikans, og nefnist játning í orðum eða confessio oris á málfari kirkjunnar. Þriðja stigið sem og hið fjórða eru einnig félagsleg. Á því fyrra sýnir sá sem játað hefur með orðum að hann eða hún er fús til að mæta afleiðingum gerða sinna, leiðrétta mistök sín, skila aftur þeim gróða sem fenginn hefur verið með ranglátum hætti ásamt því að taka út dóm sinn og refsingu ef því er að skipta. Á málfari kirkjunnar kallast slíkt yfirbótarverk eða satisfactio operis. Að þeim loknum tekur fjórða og síðasta stig ferlisins við. Það felst í því að aftur er litið á einstaklinginn sem fullgildan í samfélaginu, tekið að standa upp fyrir honum og leiða hann eða hana til þess sætis sem viðkomandi ber. Slíkt kallast aflausn eða absolution á máli kirkjunnar. Í upprunalegu umhverfi sínu var þetta ferli trúarlega skilgreint. Hinn seki prófaði sig með aðstoð prests frammi fyrir Guði oft á grundvelli svokallaðs skriftaspegils sem var forskrift eða tékklisti sem leiða skyldi í ljós afbrot fólks eða syndir. Þær voru síðan játaðar í skriftum fyrir presti sem hlýddi á játningu syndarans, lagði á hann eða hana yfirbótarverk og veitti loks aflausn í krafti þess umboðs er hann hafði þegið í vígslu sinni. Þrátt fyrir þetta virðist það félagslega endurreisnarkerfi sem hér var lýst merkingar- bært í veraldlegu samhengi án hinna trúarlegu forsendna. Þá koma ýmsar stofnanir samfélagsins og embætti í stað hins trúarlega kerfis eða kirkjunnar áður. Eins getur samfélagið í heild komið fram sem sá aðili sem tekur við játningunni og veitir endurreisnina eða aflausnina þegar það tekur þann sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.