Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Síða 30
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
30 TMM 2017 · 4
arann 1526, en meðal áheyrenda voru hraðritarar sem skráðu þá jafnóðum
niður. Þessi upprit gengu síðan milli manna, en fyrirlestrarnir voru loks
gefnir út árið 1532, eftir að Lúther hafði farið yfir textann og ritað formála
að honum. Ritið kom fyrst út á latínu en var síðan þýtt á þýsku og gefið
út í Witten berg 1559.4 En einmitt í 9. kafla Prédik arans er að finna merka
umfjöllun um listina að deyja og listina að lifa. Kaflanum má skipta í tvo
hluta, auk inngangs (v.1) og niðurlags (v.11–12), undir yfirskriftinni memento
mori (l.) (v.2–6) og carpe diem (l.) (v.7–10) eða „minnstu þess að þú deyrð“
og „njóttu dagsins“.5 Má vel segja að 9. kafli Prédik arans hafi haft mótandi
áhrif á sýn kristninnar á vægi lífsgleðinnar andspænis veruleika dauðans.6
Það er því við hæfi að athuga umfjöllun Prédik arans og skoða síðan hvernig
Lúther útfærir hana í skýringum sínum. Þegar íhuganir þeirra eru rannsak-
aðar kemur fram merkilegur samhljómur, þó að um það bil 1800 ár skilji þá
að í tíma. Það er því við hæfi að bera þessa heiðursmenn og tíðaranda þeirra
saman áður en hugað er að 9. kafla Prédik arans og útleggingu Lúthers á
honum. Það gefur að skilja að í leiðinni er nauðsynlegt að huga að umfjöll-
unum nokkurra ritskýrenda samtímans um textann.7
2. Prédik arinn og Marteinn Lúther
Þegar Prédik arinn og Lúther eru bornir saman koma fram nokkrir sameigin-
legir þættir. Í samtíma beggja tók gerð samfélagsins stakkaskiptum á sviði
efnahags- og atvinnumála, í stjórnskipun og stjórnsýslu, stjórnmálum og
menningu. Aðstæður þeirra kröfðust endurskoðunar og endurmats á grunn-
gildum samfélagsins. Og þetta endurmat fór fram innan þeirra skóla sem
höfðu það hlutverk að mennta og undirbúa unga menn til að gegna ábyrgðar-
stöðum og leiða þær breytingar sem samfélagið var að ganga í gegnum.
Annars vegar á hellenska tímabilinu í Jerúsalem þegar fulltrúar spekinnar
störfuðu, þ.á m. Prédik arinn, undir lok þriðju aldar f. Krist og hins vegar á
síðmiðöldum innan háskólanna m.a. í Wittenberg þar sem Lúther starfaði.
Prédik arinn hefur að öllum líkindum unnið sem kennari við „spekiskóla“ í
Jerúsalem á árunum 250–190 f. Kr. og var markmið kennslunnar að undirbúa
unga menn til að sinna störfum í stjórnsýslunni, í musterinu, hjá ríkisvaldinu
eða annars staðar.8 Á síðustu öld fannst handrit af bók Prédik arans í Kúmran
sem er frá því um 175 til 150 fyrir Krist og þar sem vitnað er í ritið í Síraks-
bók9 (sem er frá því um 175 f.Kr.), telja fræðimenn að ritið Prédik arinn sé
tekið saman af Prédik aranum og síðar lærisveinum hans á síðari hluta þriðju
aldar f. Kr. Í þessu samhengi er ljóst að Prédik arinn hefur starfað í Jerúsal-
em á árunum frá 250 til um 190 á svokölluðu hellenska tímabili. Svo kallast
tímabilið í sögu Ísraels frá þriðju öld og langt fram á fyrstu öld f.Kr.10 Eftir
herleiðangra Alexanders mikla (356–323 f.Kr.) 332. f. Kr. verða m.a. löndin
fyrir botni Miðjarðarhafs að grísku yfirráðasvæði. Þegar Alexander fellur frá
skiptist veldi hans á milli helstu áhrifamanna þess. Palestína, Júdea og Jerú-