Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 34
S i g u r j ó n Á r n i E y j ó l f s s o n
34 TMM 2017 · 4
Prédik arinn hafnar því ekki réttlæti og góðri hegðun, vilji maðurinn lifa
merkingarbæru lífi. Ef menn sneru baki við þessu og gæfu sig afstæðis- og
tómhyggjunni á vald yrði mannlegt samfélag fljótt að helvíti á jörðu að mati
hans. Það sem Prédik arinn gagnrýnir er áhersla hefðbundinnar guðfræði
samtíma hans á það að réttlæti og dyggðugt líf séu trygging fyrir merkingar-
bæru og hamingjusömu lífi. Það stenst ekki segir hann því staðreyndin er að:
„Hinum góða farnast eins og syndaranum“ (v.2) báðir falla fyrir dauðanum.
Hreinleiki og heilagleiki, helgihald og fórnir breyta hér engu um. Allir eru
dauðlegir og enginn veit hvenær dauðinn sækir hann eða hana heim. Prédik-
arinn hafnar því þeirri niðurstöðu Jobsbókar að vilji Guðs búi að baki öllu, og
sá vilji leiði að lokum allt til góðs og haldi öllu innan þeirra marka sem þau
lögmál réttlætis leyfa sem maðurinn setur og vill lesa inn í veruleikann og á
að lúta samkvæmt vilja Guðs. Prédik arinn segir að maðurinn viti ekkert um
það eða hvort „einhverjir séu frekar í hendi Guðs en aðrir“.25 Fyrir honum er
dauðinn ekki hlutlaus veruleiki, heldur skelfilegt afl sem öllu eyðir. Prédik-
arinn dregur hér fram dökka hlið á veruleika Guðs þar sem dauðinn er tæki
í höndum hans. Innan fræðanna nefnist hún hinn huldi Guð eða (l.) Deus
absconditus. Guð er hér sá sem hylur sig í þögn og maðurinn höndlar hann
hvorki né skilur. Guð sem getur jafnvel snúist gegn manninum bæði sem
örlagavaldur og andstæðingur. Þetta er veruleiki sem Prédik arinn og síðar
Lúther glímdu við.26
Verufræðileg sýn Prédik arans er skýr: „Það er ókostur við allt sem við
ber undir sólinni að sömu örlög mæta öllum og því fyllist hjarta mannanna
illsku og heimska ríkir í hjörtum þeirra alla ævi þeirra og síðan liggur leiðin
til hinna dauðu“ (v.3).27
En þrátt fyrir það að dauðinn virðist öllu eyða og kokgleypa merkingarleit
mannsins og hann með, þá leiðir sýn Prédik arans á lífið ekki til siðferði-
legrar afstæðihyggju. Heimurinn og maðurinn eru vissulega þverstæðufullir
og erfiðir, en þeir eru sköpun Guðs og hún er góð. Veruleiki dauðans virðist
vissulega gera allt afstætt, en samt sem áður er lífið gott, veruleiki þess og
gæði þótt afstæð séu og undir fallvaltleikann sett eða jafnvel einmitt vegna
þess. Þetta ber manninum að virða og horfast í augu við. Maðurinn veit ekk-
ert um hvað framtíðin ber í skauti sér annað en vissuna um eigin dauða, en
þrátt fyrir það á hann að játast lífinu og þeirri hamingju sem það getur þó
fært og færir honum. Maðurinn á að njóta þeirrar ánægju sem lífið hefur upp
á að bjóða, eða með orðum Prédik arans, meðan „maður er sameinaður þeim
sem lifa, svo lengi er von, því að lifandi hundur er betri en dautt ljón.“ (v.4)
Í útleggingu Lúthers á þessum texta er ekki dvalið lengi við þessa tilvistarlegu
stöðu. Lúther gerir að sínum áherslur Prédik arans en beinir síðan sjónum
að lífi og verki mannsins. Viðfangsefnið er starf mannsins andspænis veru-
leika dauðans og því tilgangsleysi sem skuggi hans virðist varpa yfir alla
tilveru. Í krafti náðar og kærleika Guðs í garð mannsins andmælir Lúther