Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 35

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 35
R a u n s æ l í f s g l e ð i TMM 2017 · 4 35 slíku og dregur fram hvernig náð og kærleikur Guðs raungerist í lífi og starfi einstaklingsins fyrir trúna. Í krafti hennar getur maðurinn betur greint í sköpuninni blessun Guðs og skikkan skaparans. Lúther grípur hér til tveggja ríkja kenningarinnar. Samkvæmt henni lýtur ytri veruleiki mannsins hinu veraldlega ríki sem nær til alls skapaðs veruleika og starfs mannsins innan hans. Þar hvíla allir án undantekninga í hendi Guðs en vandi mannsins er sá að hann kann ekki að meta það. Dæmi um slíkt er hve erfitt mönnum reynist að njóta líðandi stundar og þess sem hann þó hefur, en leita frekar annað og að öðru. Þessi árátta getur tekið á sig leiðinlegar myndir. Lúther talar hér um það mein í samtíðinni að menn þrái í friði ófrið og þegar ófriðurinn sem þeir vildu er kominn, er öðrum kennt um og sömu aðilar básúni nú um mikil- vægi friðar.28 Hið sama eigi við um fagnaðarerindið. Í stað þess að íhuga það, séu menn eins og kría á steini, hafi enga þolinmæði til að íhuga það og séu strax farnir að leita að einhverju nýju eða nýrri lögmálsánauð. „Sá sem þarf að þjóna hér í heimi með visku, réttlæti eða í krafti einhverra annarra gæða [sem fagnaðarerindið vísar til, hann] uppsker oft vanþakklæti“ segir Lúther.29 Viskan sem Prédik arinn talar um felst í því að virða þann veruleika sem við búum við og átta okkur á, að þrátt fyrir að í heiminum fái allir sömu laun, þ.e. dauðann, þá veldur trúartraustið því að maðurinn skynjar blessun Guðs mitt í veruleika sínum. Það sem skilur að góðan og illan er að vanþakklæti heimsins hindrar manninn ekki í að sinna starfi sínu og njóta ávaxta þess. Lúther segir: hér „fylgjum við okkar himneska föður sem lætur sól sína rísa og lýsa jafnt fyrir réttláta sem rangláta.“30 Þannig á kennari ekki að hverfa frá kennslu þó að einungis tveir nemendur sýni henni áhuga, hvað þá embættis- maður frá vinnu sinni þótt aðeins tveir borgarar taki borgaralegar skyldur sínar alvarlega.31 Og þó að veruleikinn virðist oft vera á valdi Satans, á það ekki að hindra manninn í að sinna sínu og njóta þess sem lífið þó gefur hér og nú. Þess vegna er „lifandi hundur betri en dautt ljón“ (v.4) segir Lúther og vitnar í orð Prédik arans. 4. Lífsgleðin – carpe diem Hvað á maðurinn þá að gera? spyr Prédik arinn og svarar: „Farðu því og et brauð þitt með ánægju og drekktu vín þitt með glöðu hjarta því að Guð hefur lengi haft velþóknun á verkum þínum. Klæði þín séu ætíð hvít og höfuð þitt skorti aldrei ilmsmyrslin. Njóttu lífsins með konunni, sem þú elskar, alla daga þíns fánýta lífs, sem hann hefur gefið þér undir sólinni, alla þína fánýtu daga því að það er hlutdeild þín í lífinu og það sem þú færð fyrir strit þitt sem þú streitist við undir sólinni“ (v.7–9). Hér er áhugaverð þrískiptingin. Fyrst er það hversdagleikinn, þar ber manninum að gæta þess að njóta síns daglega fæðis (þ.e. brauðs og víns). Áhersla sem tekin er fyrir í fjórðu bæn Faðir vorsins „gef oss í dag vort dag- legt brauð“ (Mt 6.11).32 Í annan stað á maðurinn að gera sér dagamun, klæða
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.