Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 91

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Page 91
Á l e i ð i s a ð U r ð a r s e l i TMM 2017 · 4 91 Eins vekur athygli að samskipti við hálfþroskaðar stúlkur skipta miklu á ferli beggja þeirra Bjarts og Ólafs Kárasonar, hvors með sínum hætti. Trúlega er Jón stórbóndi og hreppstjóri á Úti-Rauðsmýri sá maður í verkinu sem hægt er að segja um að spegli Bjart einna best. Hvor andspænis öðrum speglar drætti hins og móthverfar andstæður. Þeir hugsa svipað hvor öðrum og samtöl þeirra eru stórkostleg. Í ljós kemur að þeir miða við svipaðar mælistikur um mannlífið og hafa áþekkt gildismat báðir. Öðrum þræði lítur Jón niður á hjúið en um leið finnur hann til andlegs skyldleika með Bjarti. Einstök er sú einkunn sem viðmóti Jóns er gefin: „Þessi sérgóði meðaumkunartónn, sem skilyrðislaust setti aðra menn á bekk með brjóstum- kennanlegu úrhraki án þess að vera þó nokkurntíma beinlínis meiðandi …“ (H 2011:164). Samhliða róttækri samhyggju vekur athygli í verkinu hversu djúptæk og skörp einstaklingsafstaða kemur þar fram og hve mögnuð og skörp ein- staklingseinkenni birtast. Í verkinu birtast meðal annars fljótfærni, bráð- lyndi og þrjóska, misheppni og mistök, þrákelkni og óstýrilæti í mörgum myndum, og einmitt þvert andstætt hagrænum áhrifum, samfélagsstöðu eða hagsmunum. Hér sker Bjartur sig auðvitað úr. En afstaða Bjarts er flókin. Hugsunar- háttur hans sundrar skilgreiningum. Á ytra borði er hann hortugur, hrjúfur, grófyrtur og viðskotaillur. En undir sögulok birtist hlý samkennd hans og endurómar fyrri atvik í verkinu: „Hann virti fyrir sér úngbarn hennar sem svaf, það var nú einusinni svo, að í hvert skifti sem Bjartur sá lifandi úng- barn, þá fyltist hann vorkunnlæti, – skelfíng sem þetta er lítilfjörlegt, sagði hann. Já mannkynið er aumt þegar maður lítur á það einsog það er í raun og veru“ (H 2011:720). Samskipti hans við Ástu Sóllilju eru áhrifamikil. Halldór Guðmundsson segir: „Ástarsaga þeirra er ótrúlega vel sögð; hún er lágvært stef í annars háværri hljómkviðu verksins“ (H 1996:76). Séra Gunnar Kristjánsson kallar tengsl þeirra „eins konar líftaug sögunnar“ (Gunnar 2002:75). Samskipti þeirra, og áhrif þeirra hvors á hitt, eru söguþráður sem gengur um allt verkið, þögul en hlý undiralda djúpra mennskra kennda. Og þessar kenndir bregða ljósi yfir þau bæði og þó sérstaklega yfir Bjart, ljósi sem sýnir aðra drætti í skapgerð hans en hörkuna sem ríkir á yfirborðinu. Á bak við hörkulega ytri sýnd eru hlýja og fegurð inni fyrir, læstar, faldar og niðurbældar báðum þeim til harms og skaða. Bjartur er ævinlega of bráður, of harðorður, hefur ekki stjórn á sjálfræðis- viðbragði sínu, að slá alltaf frá sér strax eins og til að komast sjálfur undan einhverju höggi – jafnvel innan frá. Hann er endalaust að setja upp skrápinn og urra þegar hann vildi gefa önnur hljóð frá sér. Það er eins og hann beri bernskureynslu sem kennir honum að varast að opna sig. Og Ásta vex og þroskast til að geta tekið á móti. Ásamt samhyggju og samfélagslegri vitsmunastefnu sem vakir yfir ytra
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.