Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 111
Á l e i ð i s a ð U r ð a r s e l i TMM 2017 · 4 111 öllum heiminum.“ Á sömu stundu er stúlkan illa búin og skelfingu lostin í hrakningum af hans völdum. Eitthvað er að kvika í sál hans sem fær hann til að leggja alla athygli sína að lömbunum. Eitthvað berst um þar inni, glímir við sjálft sig og heldur sjálfu sér niðri eins og grátstaf. Gæti hörkutólið verið að beina frá sér niðurbældu samviskubiti? Hér eru æpandi mótsetningar (H 2011:566–568). Ef til vill nær andstæðuleikurinn hæst í 19. kafla í fyrsta hluta verksins (H 2011:170–173) þegar segir frá lífgun barnsins nýfædda. Svipuðum tökum tekur skáldið ýmis atvik í samskiptum þeirra Bjarts og Ástu síðar í verkinu. Fyrirvaralausum orðum og athöfnum er slöngvað skýringarlaust í vit lesanda. Hörð orð og köld fljúga yfir sjóðandi heitan veruleika, og átakið á milli skilið eftir í huga lesandans. Eitthvað megnar það tungumál sem rúmar slíkan merkingarburð og einhver er sú andagift sem slíku getur valdið. En Bjartur viknar strax við fyrstu sýn og snertingu við nýfætt barnið. Hér er leynihólf með loku í sál hans. Þegar hún tekur að vaxa og vita til sín lendir hann í vanda og hugsar: „…– þetta litla blóm“ (H 2011:261). Löngu síðar, á erfiðri stund, segir Bjartur um hana: „… og gerði það að lífsblóminu mínu í fimtán ár …“ (H 2011:560). Þegar Guðný ráðskona, harðhent og harðyrt, spyr hvaða nafn hann hyggst gefa barninu, svarar hann: „Ja ég skal taka að mér að vera pabbi hennar uppá það, aumingjans, fallegu nafni skal hún heita … Hún skal heita Ásta Sóllilja … – svo tölum við ekki meira um það“ (H 2011: 173). Ásta Sóllilja er óvenjulegt nafn. Önfirsk kona, fædd 1892, bar þetta nafn (Kjartan 1999:370; Torfi 2002:76). Hreppstjórinn undrast slíka nafngift (H 2011:250). Merking þess og hugblær eru gerólík viðmóti Guðbjarts Jóns- sonar í Sumarhúsum. Smám saman kemur í ljós að hún opnaði leynihólfið þegar hann sá hana fyrst hálfdauða undir lúsugri tíkinni uppi á skörinni (H 2011:156). Í leynihólfinu eru bæði ástúð og mannúð, samlíðun. Hér er allt í æpandi andstæðum og mótsögnum. Orð skáldsins um skiptan svip í andliti Ástu gefa hlaðnar vísbendingar. Bjartur líkir Ástu við blóm. Þá sýn verður að ætla að hann hafi fengið af ljóðalestri. Eitt sinn hrekkur blíðyrði upp úr Bjarti við Rósu og sýnir sömu tengingu við nafn hennar (H 2011:133). Lilja kemur fyrir í kvenkenningum rímna og í danskvæðum, og alkunn eru bæði Ólafur liljurós og Lilja Eysteins munks, en ekki er óhugsandi að Bjartur eigi að hafa fengið þetta úr róman- tískum ljóðum þrátt fyrir allt. Það er þá enn eitt dæmi um djarfar mót- setningar og óvæntar skírskotanir í verkinu. Hugsanlega skírskotar skáldið þá með nafninu til Ástu, eins fegursta ljóðs eftir sjálfan aðalgagnrýnanda rímnanna Jónas Hallgrímsson. Í ljóðinu segir: „Veistu það, Ásta, að ástar / þig elur nú sólin?“ En í lesmálinu finnur lesandi eiginlega engar óvæntar sveiflur, misfellur eða ósamræmi. Og þessi nöfn eru ekki fátækleg: Ásta Sól- lilja, Rósa, Guðbjartur. Konunafnið Ásta opnar hugrenningatengsl og blækveikjur. Blómið lilja er alþekkt í táknmáli frá alda öðli víða um lönd. Táknun liljunnar fer nokkuð
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.