Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 116

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2017, Side 116
J ó n S i g u r ð s s o n 116 TMM 2017 · 4 hugsa um aðra slíka þrjóska baráttujaxla sem aldrei vildu gefast upp? Ekki er vafi að skáldið sér Bjart flækjast úr vondum stað í „annan verri“, en merkilegt er þó að lýsingar í lesmálinu og orð gömlu konunnar styðja ekki að slíku mati. Kann að vera að Halldóri sjálfum ofbjóði erfiðleikar Bjarts og finnist hann verða að fá annað tækifæri? Er hugarfar Bjarts orðið skáldinu svo heillandi að það fær ekki af sér að rjúfa sálarviðjar bóndans eða afneita baráttuhug hans? Fann skáldið, þrátt fyrir allt, samhljóm innra með sjálfu sér? Skáldverkið fær ekki vitsmunalega niðurstöðu, frekar en mannlegt líf yfir- leitt. Hér verður áfram strit í þrákelkni frelsisins, óvinnanlegt stríð mannsins við umhverfi sitt og sjálfan sig, endalaus barátta í skammsýni mennskunnar. Náttúran og eðlið, landið og mannlífið, halda áfram eilífri hringrás árstíða og örlaga, leitar og viðleitni mannsins. Enn ráða blendni og margfeldni för í ófyrirsjáanlegri rás andstæðna og mótsetninga. Baráttan sjálf virðist mikil- vægari en eitthvert skýrt sigurmark. Greinilegt er að skáldið vill ítreka í lokin að baráttunni er engan veginn lokið; hún er enn framundan og heldur áfram. Enn er hér kveikt bál í hugarfylgsnum lesandans og hann knúinn til leitar að eigin svörum – og til samlíðunar. XVIII Sjálfstætt fólk fjallar vissulega um samfélagsmál og um hugsjónir sem skíð- loguðu í hugskoti höfundarins á ritunartímanum, glæddar stormum sinna tíða. Vitaskuld er það virðingarvert að gera uppreisn gegn frumstæðishyggju, upphafningu fátæktar og blindri afturhvarfsþrá. En verkið fjallar ekki síður um einkamál, fjölskyldutengsl, skapólgu, skapbresti, bráðræði, mistök, átök, tilfinningar, ástúð og ást. Og það gildir einu hve ákaflega Halldóri svellur móður í boðun sinni, að Bjartur er óstýrilátur og hlýðir höfundi sínum ekki, ekki frekar en öðrum. Hann samþykkir ekki nýja tíma höfundarins og hann heldur áfram og gefst ekki upp. Baráttan er eilíf, hið ytra sem hið innra. Mót- sagnaleikurinn heldur áfram, líka í því að veikindi Ástu eru ekki úr fásinni sveitarinnar heldur einmitt úr þorpinu sem annars táknar nýja tíma. Bent hefur verið á áhrif af styttu Einars Jónssonar, Útilegumanninum, á sögulok Sjálfstæðs fólks (Gunnar 2002:77; Halldór 2004:365–366; Hannes 2004:108). Vésteinn Ólason nefnir hina „sálfræðilegu dýpt og blæbrigði“ í verkinu (Vésteinn 1983:18). Hann segir: Bjartur „lætur stjórnast af mann- legustu tilfinningum sínum þegar hann sættist við Ástu“ (Vésteinn 1977; 2008:45). Bjartur setur stefnu að öðru heiðakoti í fjölskyldunni og nær sáttum við sjálfan sig með því að taka Ástu í sátt. Í því eru ný hvörf í verkinu, dýr- mætur sigur á þroskabraut hans sjálfs. Morgunn rennur upp yfir fátæklega klædda smástelpu sem dundar sér úti við, dóttir Ástu og heitir auðvitað Björt. Frásagnarháttur skáldsins hefur aðkenningu af kvikmynd. Þegar Bjartur eltir hana inn til Ástu er þessari mynd brugðið upp: „En þegar hún sá Bjart koma á eftir, þá fóru augu hennar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.