Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 29
ÓFEIGUR
29
XXXII.
Eg hefi í fyrri heftum Ófeigs birt nokkuð af þeim
tillögum, sem ég bar fram á hinu missirislanga þingi
194T—48. Kom þar fyrst til greina tiilagan um að hefja
víðtæka starfsemi til að afla landsmönnum mark-
aðs fyrir hraðfrystan fisk í Ameríku. Önnur tillagan
var áskorun um að stjórnin léti safna heimildum varð-
andi kaup, kjör og verðiag á Bretlandi og Norðurlönd-
um og að síðan væri birtar um þetta efni skýrslur til
samanburðar við íslenzka dýrtíð. Þriðja málið var spurn-
ing um, hvaða menn gætu fengið áfengi með niðursettu
verði. Valdamenn landsins hinir æðstu hafa þessi sér-
réttindi og vilja halda þeim. Fjórða málið var ábend-
ing um að nota hitaveituvatnið í Reykjavík að vor og
sumarlagi til að þurrka saltfisk fyrir Suðurlandamark-
að. Fimmta mál var áskorun um að ríkið keypti lóðir
bak við menntaskólann til að geta bætt úr húsþörf skól-
ans. Brynjólfur og Eysteinn hafa sýnt mikið hirðu-
leysi um málefni skólans. En þessi leið mun þó að lok-
um farin, því að rétt mál mæla með sér sjálf. Næst
bar ég fram þrjár hliðstæðar tillögur um mannúðar-
málefni: Stækkun á Litla-Hrauni, stækkun á fávita-
hælinu á Kleppjárnsreykjum og um að stofnsetja heim-
ili fyrir áfengissjúklinga í Ólafsdal. Um þessar tillög-
ur má segja, að þar hefir að vísu að mestu verið tal-
að fyri daufum eyrum, en þrátt fyrir allan svefn og
áhugaleysi, hafa umræður um réttmæt mál nokkurt
vakningargildi. Nú vita menn, að við verðum að fá frá
Bandaríkjunum vörur fyrir 100 milljónir, og er þó spar-
að á alla vegu. Útflutningur til Bandaríkjanna mun
tæplega ná 20 miíljónum kr. i ár. Segjum að Marshall-
lán verði 2 milljónir á mánuði, þá vantar samt gjald-
eyri fyrir meira en helming af minnstu þörf. Hrað-
frysti fiskurinn væri allur seljanlegur vestanhafs, ef
ekki stæði á dýrtíðinni hér á landi. Hallærislán er auk
þess mjög undarleg ráðstöfun, eins og aðstæður á Is-
landi eru um þessar mundir. Samanburð við næstu lönd
þolir sú þjóð ekki, sem borgar kolamönnum, loft-
skeytamönnum og eldamönnum á skipum tvöföld laun
forsætisráðherra. Vínundanþága valdamanna landsins
er nú almennt fordæmd og fyrirlitin af almenningi og
mun varla haldast til langframa. Saltfisksþurrkun við
hverahita á áreiðanlega mikla framtíð. Ríkisstjómin