Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 67
ÖFEXGUR
67
ára skeið herjað á þessu svæði. Mörg úrræði til úrbóta
hafa verið reynd án árangurs. Fjárskipti eru nauðsyn-
leg á þessu svæði vegna þeirra bænda, sem þar búa.
En auk þess stafar öðrum héruðum í Norðlendinga-
fjórðungi hætta af smitun frá þessu svæði, ef sauðfé
með garnaveiki er þar á fóðrum og í högum, eftir að
búið er að skipta í öllum öðrum sveitum norðan lands.
Mjög mikil hætta er á samgangi fjár í Eyjafirði milli
sýktra og ósýktra hluta héraðsins, því að þar eru ekki
luktir fjallgarðar eða stór fallvötn til að styðjast við
um vörnina. Girðingin við Héraðsvötn virðist ekki vera
örugg, því að garnaveikin hefur borizt vestur yfir vötn-
in. Virðist þess vegna langhyggilegast að slátra öllu
fé á þessu svæði að hausti og hafa landið sauðlaust
eitt ár.
X. Tíu mi3!jónir í Ræktunarsjóð.
Komið hefur í Ijós í þingræðu, sem landbúnaðarráð-
hcrra hefur haldið nýlega, að stjórninni hefur ekki
tekizt að útvega Ræktunarsjóði 10 milljónir kr. sem
starfsfé. Það var tilgangur þingsins, að þetta starfs-
fé skyldi með nokkrum hætti bæta úr brýnustu þörf
landbúnaðarins, eins og stofnlánadeildin gerir fyrir
útveginn. Að vísu er framlagið til þessara atvinnu-
greina mjög missstórt, en þó kastar fyrst tólfunum,
þegar sveitamenn fá ekki nema loforð á prentpappír
til að ljúka við byggingar sínar og ræktunarfram-
kvæmdir.
Af greinargerð ráðherrans er augljóst, að mjög er
borin von, að stjórnin geti útvegað þessa f járhæð, hvorki
með tekjuafgangi úr ríkissjóði né með lántökum úr
bönkum eða sjóðum. Taldi ráðherra, að lausaskuld rík-
isins í Landsbankanum mundi nú nema um 40 milljón-
um, og ýmsar ríkisstofnanir skulda í sömu stofnun
álíka fjárhæð. Mjög er líka sótt á hina bankana, og
mun þar engin von um stórlán handa Ræktunarsjóði.
En ríkisstjórninni áskotnaðist árið sem leið, úr eigna-
könnuninni, rúmlega ein milljón króna í reiðu fé og níu
milljónir í góðum skuldabréfum. Enx bændur vel komn-
ir að þessu fé, þó að seint sé. Mun þetta vera ailsendis
eina fjárhæðin, sem hugsanlegt er að útvega Ræktun-
arsjóði um allmörg næstu ár.