Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 90
makt suður í Skálholti, sóttu Skagfirðingar líkami
þeirra feðga suður yfir öræfin og jarðsettu þau á Hól-
um. Það þarf stórfellt skilningsleysi á sögu landsins
og tilfinningum Skagfirðinga til að geta búizt við, að
mál þetta verði látið niður falla, eins og því er nú
komið.
Þá hefur sjálf dómkirkjan á Hólum verið min flest-
um sínum góðu gripum og þeir fluttir í þjóðminja-
safnið. Er þetta furðuleg og óafsakanleg djarftækni.
Má segja hið sama um fjölda annarra kirkna, að þær
hafa verið sviptar helgigripum sínum. Hefur þessum
gripum verið safnað til Reykjavíkur og geymdir undir
timburþaki í miðbænum, og gæti allt safnið farizt þar
í eldi á nokkrum mínútum. Á styrjaldartímum er hætt-
an fyrir slíka gripi hvergi jafnmikil á öliu landinu eins
og við flugvöll Reykjavíkur. Þykir nú við eiga að nota
þann almenna áhuga, sem vaknað hefur í sambandi
við framkomu dr. Guðbrands Jónsonar varðandi óleyfi-
lega meðferð hans á jarðneskum leifum Jóns Arason-
ar og sona hans, til að koma eðliiegri skipun á öll
þessi mál með því, að allar kirkjur utan höfuðstaðar-
ins fái aftur frá þjóðminjasafninu alla sína gömlu gripi,
sem þangað hafa verið fluttir, og verði haft um þetta
ráð biskups, hlutaðeigandi presta og sóknarnefnda.
XXV. Þingmannaheimili.
Þegar leið að alþingishátíðinni 1930, var algerð vönt-
un á viðunandi gistihúsi í höfuðstaðnum tii að taka á
móti innlendum og erlendum gestum. Ríkið og bærinn
þurftu að fá gistihús vegna almennra þarfa, en hvor-
ugur aðilinn hafði löngun eða fé til að stofna til þess
háttar rekstrar. Vildi þá svo tii, að Jóhannes Jósefs-
son var að flytja heim frá útlöndum og vildi hefja hér
atvinnurekstur. Var um margt að velja, sem arðvæn-
legt þótti, ekki sízt í samband við verzlun, en Jóhannesi
þótti hér vera mest vöntun á nútíma gistihúsi og var
fús að hætta aleigu sinni, 200 þús. kr., í gistihúsbygg-
ingu. Ríkið og Reykjavíkurbær veittu ábyrgð fyrir láni
og nokkra óbeina aðstoð. Hótel Borg var reist og hef-
ur síðan verið eina gistihús höfuðstaðarins, þar sem
húsakjmni eru miðuð við nútíma kröfur. Hótelið bar
sig vel fyrstu misserin, en allan krepputímann, 1931—