Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 105
ÓFEIGUR
M5-
um. Skyndilega fá Hermann og Eysteinn, með leynileg-
um undirróðri, allmarga menn úr þingflokki og mið-
stjórn til að svíkja þessi heit og rjúfa þessa eiða. Þeim
gekk ekkert til nema valdabrask, óforsvaranlegt þekk-
ingarleysi og léttúð. Ég hefi formlegan, siðferðisleg-
an og mannlegan rétt til að sækja til sektar fyrir dóm-
stóli sögunnar þá menn, sem stóðu að þessum svikum
og allri þeirri eyðileggingu sem af þeim hefir leitt.
#
Aðstandendur Dags finna nú, hvert þeir Hermann
og Eysteinn hafa leitt þá. Þess vegna afneitar Dagur
nú kröftuglega öllu samneyti við fimmtuherdeildina.
En í sama blaði og afneitunin er fram borin, sækir
blaðið harðlega að kommúnistum á Akureyri fyrir að
þeir hafi margsvikið samkomulag við borgaraflokkana
eftir síðustu kosningar. Ef Dagsmenn á Akureyri hefðu
ekki gert samninga við fimmtu herdeildina, gátu þeir
sparað sér vonbrigðin. Þetta dæmi bregður skörpu ljósi
yfri misstig Framsóknarleiðtoganna, síðan þeir rufu
heit sín, 1942. Þeir hafa alltaf verið að biðja um samn-
inga um vinstristjórn, reynt að gera samkomulag, en
verið dolfallnir, eins og Laxness, þegar menn, sem eru
að leika sér að trúgirni fólks, standa aldrei við neitt
nema lævísi og brögð.
Halldór sálmaskáld hefir verið í meira lagi óhepp-
inn í vetur. Hann valdi sér rithöfundarnafn, sem líkist
engu nema hans eigin sálmi eða boðorðum. Þegar „krat-
ar“ drógu í efa, að skáldið hefði rétt til að vera í bæn-
um, láðist honum að nefna, að hann væri aðalaðstoðar-
maður menntamálaráðherrans við eitt stjórnarblaðið
og auk þess í fínustu nefndinni af þeim 112. I stað
þess gerði skáldið þá grein fyrir veru sinni í bænum,
að hann væri giftur. Væri konan í vist og fengi hann
að vera til húsa hjá henni með góðu samþykki allra.
Ef skáldið hefði lesið, með athygli, í Njálu um Björn
í Mörk, mundi hann hafa séð, að konur gera hetjur
úr mönnum sínum, ef þeir eru það ekki. Skýring Hall-
dórs er slæm, en hefði þó verið enn verri á riddara-
öldinni,
*
Stærst af öllum blaðamannaóhöppum Halldórs er á-
rás hans á félagsbróður við Tímann við líkbörur hans.