Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 30
30
ÓFEIGUR
virðist vera farin að siá, að menntaskóiinn verði varla
hamingjusamur hjá Kleppi, þó að Brynjólfur ætlaði
að endurreisa hann þar fyrir 15 milljónir, rétt hjá hinni
frægu ýldustöð, sem dreifir pestarlofti um bæinn. Verð-
ur nú í sumar byrjað á að laga gamla skólann og halda
áfram verki því, sem ég byrjaði fyrir 20 árum, en hætt
var við, þegar gamlir nemendur úr skólanum tóku við
ábyrgðinni. Lóðakaup og nýjar byggingar á skólaeign-
inni munu fylgja í kjölfarið. Dómsmálaráðherra mun
hafa hug á að láta vistmenn á Litla-Hrauni reisa ein-
faldar viðbótarbyggingar á hælinu, svo að dæmdir menn
þurfi ekki, eins og nú, að bíða árum saman eftir að fá
að úttaka dóminn. Þetta er í einu auðvelt verk og nauð-
synlegt. Fávitamálið er eitt af mestu hneykslum heil-
brigðismálanna. Um 200 fávitar þjá og þjaka heimili
ættmenna sinna. Einir 20 fá griðastað í fyrrverandi
sjúkrahúsi á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Þar
ætti að byggja einföld smáhýsi fyrir alla fávita, sem
til eru á landinu. Á þessum stað er óþrotlegur jarð-
hiti, sem ríkið á og ræktunarskilyrði ágæt. Starfs-
fólkið við hælið gæti myndað byggðarhverfi á staðn-
um og haft mikla framleiðslu og notið heilbrigðra lífs-
kjara samhliða erfiðu hjúkrunarverki. 1 stað þess
ætla svokölluð heilbrigðisyfirvöld að freista að koma
þessu ógæfusama fólki fyrir við veginn milli Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar, eins og sjaldgæfum sýningar-
gripum. I Reykjavík einni skipta áfengissjúklingar
mörgum tugum. Flestir flækjast þeir kringum áfengis-
söluna og við höfnina. Er sú útgerð dýr, aumkunarverð
og hörmuleg. Um hinar vanmáttugu tilraunir templara
og tveggja lækna með hæli fyrir áfengissjúklinga, er
áður talað, Allt, sem með þarf, er löggjöf um að á-
fengissjúklingar séu sviftir lögræði og verði að dvelja
á þar til gerðum spítala þar til þeir hafa læknazt. Ella
dvelja þar ævilangt, eins og annað fólk sem þjáist af
ólæknandi og hættulegum sjúkdómum. Borgarstjórinn
í Reykjavík og dómsmálaráðherra munu hafa hug á
að koma upp slíku hæli, en ekki í Ólafsdal. Þar gat
farið vel um slíkt hæli, en fleiri staðir eru góðir. Um
flest þessi mál mun mega segja, að þau eru ýmist á
vakningar eða framkvæmdarstigi, og má vel við það
una. Róm var ekki byggð á einum degi.