Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 45
ÓFEIGUR
45
ár. Bendingar Svía og Dana til handa íslendingum um
að neita hervemd Bandaríkjanna eru sprottnar af því,
að þessar þjóðir þykjast mega búast við þvi harðari
ásókn úr austurátt sem vesturveldin tryggja betur að-
stöðu sína í Atlantshafi. Mun Norðurlandabúa gruna,
áð Rússar kunni að velja sér léttustu leið vestur að
Atlantshafi, til þess að geta sem bezt undirbúið sókn
móti lýðfrjálsu þjóðunum í vesturvegi, þegar fylling
tímans er komin. Liggur þsesi hætta í augum uppi, þeg-
ar þess er gætt, að einræðisþjóðir nútímans leggja undir
sig lönd og þjóðir með mikinn vamarmátt og hræðast
þess vegna ekki mótstöðu smáþjóða. Þar sem nokkur
hluti íslenzkra stjórnmálamanna leggur áherzlu á, að
landið verði bráðlega og helzt sem allra fyrst alger-
lega varnarvana, þá gæti, ef svo væri haldið áfram stefn-
unni, tæplega hjá því fraið, að í upphafi næstu styrj-
aldár yrði Island orðið varnarvirki árásarþjóðar, sem
sækti fram móti Engilsöxum og móti vestrænu frelsi.
Göring mundi hafa skapað sér þvílíka aðstöðu í nýaf-
stöðnu stríði, ef hér hefðu þá verið til flugvellir. Það
er lífsnauðsyn fyrir ísland og fyrir öll Norðurlönd að
taka alls ekkert tillit til þessara norrænu tillagna. Ör-
yggi íslands er bundið við það, að hér séu vamir í sam-
bandi við Vesturlönd. Enginn vafi er á því, að ef Dan-
mörk, Noregur, Svíþjóo og Finnland væm aðskilin frá
Russlandi með ailbreiðu hafi, mundi hvert þessara ríkja
fagna því að mega gera hervarnabandalag við Engil-
saxa, eins og ástandi heimsstjórnmálanna er nú hátt-
að. Þegar Rússar réðust á Finnland 1939, báðu Finn-
ar vesturveldin um hjálp, en þá hjálp var ekki hægt
að yeita, því að hvorki Noregur né Svíþjóð vildu leyfa
liðflutning gegnum lönd sín. Þá var svo mikil vinátta
með Stalin og Hitler, að Þjóðverjar hótuðu norrænu
þjóðunum stríði, ef þær veittu Finnum liðveizlu á þann
hátt, sem með þurfti. Eins og fyrr er að vikið, báðu
Norðmenn Breta og Frakka um hjálp, eftir innrás
Þjóðverja 1940. Vesturveldin brugðust vel við, meir
af góðum vilja en mætti, en þá vom öll sund lokuð.
Þjóðverjar höfðu þá misnotað hlutleysi Norðmanna
svo sem mest mátti vera og lágu hvarvetna innan
skerja með skip og herafla, svo að bandamenn gátu
hvergi fengið fótfestu í Noregi og urðu að flytja liðs-
kost sinn aftur til Englands og skilja Noreg eftir í