Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 63
ÓFEIGUR
63
sýnt mestan flokksdugnað við að mynda núverandi
ríkisrekstur í listum og skáldskap á íslandi. Er þetta
raunar eðiilegt, þar sem sovétstjórnin hefur í landi
sínu lagt undir sitt valdasvið allar greinar framleiðsl-
unnar og alla andlega starfsemi og Iistir. Eftir því sem
greinagóðir ferðamenn frá Rússlandi herma, hefur með
gífurlegri harðstjórn tekizt að framleiða með þjóðnýt-
ingu margháttaðar efnivörur, en með skáldskap og
listir hefur farið á annan veg. Enginn Tolstoy hefur
ritað heimsfræg snilldarverk í Rússlandi undir stjórn
bolsivika. Virðist framleiðsla nýrra listaverka og skáld-
verka hafa verið mest til gagns og gleði fyrir stjórnar-
flokkinn, enda svo til stofnað. Mun það mál manna, að
ekki megi við því búast, að nokkur þjóð framleiði snilld-
arljóð eða háfleygar myndir eftir ákvörðunum frá vald-
höfum landsins. Hér er ííka sú reyndin, að hin miklu
ríkisframlög hafa ekki skapað svo mikið sem eitt ein-
asta skáld eða listamann. Rókmennta- og listasaga
landsins sannar ótvírætt, að allir afburðamenn á því
sviði hafa gert sín góðu og varanlegu verk af innri
þörf, en aldrei fyrir Iaun eða kaup.
Skömmu fyrir síðari heimsstyrjöldina var svo kom-
ið, að þing og stjórn gat ekki ráðið við hinn sívaxandi
straum nýliða í skáldskap og myndlist sem sótti inn á
f járlögin. Var þá tekin upp sú nýbreytni, að fela mennta-
málaráði þessi f járskipti. Stóð það í nokkur ár. Á þeim
árum tókst að hlífa skáldum og listamönnum við að
vera árlega kvikskornir á Alþingi, en kommúnistar
þóttust ekki fá fulla rétting sinna mála með bessum
hætti. Töldu þeir, að skáldin og Iistamennirnir ættu
sjálfir að skipta styrknum milli sín. Var það gert að
þeirra vilja, að fela stéttarfélagi skáldanna að skipta
ríkisfénu milli félagsmanna. En þá gerðist í höfuðstaðn-
um sá leikur, sem Egill Skallagrímsson vildi upp taka
á Þingvöllum, þegar dreifa skyldi fjársjóðum hans
yfir þingheim. Urðu nú hrindingar og pústrar með fé-
lagsmönnum og innan tíðar sprakk stéttarfélagið og
skiptist milli borgaralegra og austrænna manna. Alþingi
tók þá upp þann sið, að kjósa með hlutfallskosningu
sérstaka nefnd til að skipta skálda- og listamannasjóðn-
um. Eiga allri þingflokkar fulltrúa í nefndinni.
Kommúnistar höfðu beitt sér fyrir stöðugri hækk-
un á þessu ríkisframlagi. Á yfirstandandi fjárlögum