Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 98
98
ÖFEIGUR
að bjarga sér og sínum farmi úr hættu íslenzkra erfið-
leika. Yfirmenn íslenzkra skipa fá miklu meiri verk-
lega æfingu en flugmenn okkar, og mun þó mega telja
starf flugmannsins enn vandameira en sjómannsins.
Glöggt dæmi um hliðstætt efni má taka úr atvinnu-
lífi Mývetninga. Öldum saman hafa þeir orðið að dvelj-
ast marga daga í senn á auðnum Austurfjalla í f jár-
leitum og fjárgeymslu. Oft hafa þessir menn orðið að
fara leiðar sinnar á hinum miklu auðnum í blindhríð
dag eftir dag og finna sæluhús og leitarmannakofa
til gistingar. Mjög sjaldan hafa þessir menn orðið úti.
Synir hafa lært af feðrum, og þannig hefur ferðamenn-
ing þeirra komizt á svo hátt stig, að um suma þessa
menn er fullyrt, að þeir hafi ekki getað villzt. Það
hafa farið saman þau einkenni, sem nauðsynlegust eru,
dirfskan og varfærnin.
Stjóm flugmálanna og flugfélaganna verður að beita
sér fyrir auknu öryggi í þessum málum. Flugmennirnir
mundu fagna öllum skynsamlegum aðgerðuxn í þessu
efni. Hafa komið frá sumum mestu afreksmönnum flug-
þ)jónustunnar eindregnar kröfur, sem stefna í sömu átt
og þessi tillaga.
XXIX. Búmaðarnám.
Saga íslenzkra búnaðarskólamála er full af eftir-
tektarverðum mistökum, en ætíð hefur komið fram
hjá leiðtogum bænda virðingarverður áhugi fyrir bún-
acarnámi. Fáum árum eftir að landið fékk nokkur um-
ráð yfir sínum málum 1874, komust á fót 4 bænda-
skólar, einn í hverjum fjórðungi. Landssjóður, ömtin
og einstakir menn lögðu fram fé til þessara fram-
kvæmda. Námstíminn var tvö ár. Á vorin og sumrin
unnu nemendur að öllum venjulegum bústörfum utan
húss með skólastjórum og kennurum, en á vetrum var
að mestu bókleg kennsla. Ölafsdalsskóli hafði mest áhrif,
en var minnst studdur af mannfélaginu. Að lokum
varð Torfi Bjarnason skólastjóri að gefast upp með
sinn skóla eítir að hafa sýnt löndum sínum, hvernig
búnaðarskóli átti að vera, og framkvæmt fyrstu stóru
umbótina í íslenzkum nútímabúskap, það er að
beita hestverkfærum við vinnuna í stað þess að nota
mannsorkuna sem aðalhreyfiafl við framleiðslustörfin.
Þegar leið að aldamótum, var orðið áberandi, hve