Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 75
ÓFEIGUR
75
nokkuð og hef ja þar ríkisrekstur, en nokkru eftir stjóm-
arskiptin var hallinn á þeirri útgerð, með umbótum á
hiisunum, orðinn 500 þús. kr. Lét ríkisstjómin þá ung-
an og efnilegan veitingamann fá húsið til rekstrar. Hef-
ur sá maður staðið vel í stöðu sinni, en skortir rekstrar-
fé, og liggur við borð, að hann muni verða að hætta,
og er þá sennilegt, að húsinu verði lokað til fulls, nema
ef sett yrði þar á stofn áfengisútsala, en það mun tæp-
lega þykja við eigandi. Höfuðstaðinn vantar gistihús.
Þúsundir gesta, sem koma til bæjarins, verða að þrengja
sér inn í íbúðir vina og hálfkunningja til að fá þak yfir
höfuðið. Það er talað um að reisa með stuðningi skatt-
þegnanna gistihús fyrir 15 milljónir. Þessi ákvörðun
var byggð á réttmætri þörf, en vegna fjárhagserfið-
leika líða ár og dagar, án þess að bærinn fái þessa úr-
bót. Hve vel, sem nýja hótelið hefði verið starfrækt,
mundi hafa þurft í byrjun að afskrifa að minnsta kosti
10 milljónir af stofnkostnaðinum, því að gistihúsrekst-
ur er nauðsynlegur, en ekki févænlegur á íslandi.
Ef til þess kemur, að leggja verði niður og rífa 100
manna gististað í útjaðri Reykjavíkur, hús með þeim
útbúnaði til gestamóttöku, sem hefur um ára skeið
þótt fullboðlegur frægustu forustumönnum helztu menn-
ingarþjóðanna, þá er slíkt háttalag vottur um óskemmti-
legt úrræða- og manndómsleysi. Hér þarf að sýna
nokkra rögg, og böndin berast í þeim efnum að þeim
þrem aðilum, sem sáu, að hér þarf að gera myndar-
legt átak. Ríkið, bærinn og Eimskip ættu að standa
saman um að hlynna að vel færum manni til að starf-
rækja þetta flugvallargistihús, meðan það er nothæft
og þess þörf. Tilvonandi eigendur stóra gistihússins
gætu rneð þessari ódýru tilraun fengið margháttaða
rejmslu, sem komið getur að gagni við stærri og fjár-
frekari framkvæmdir.
I Svíþjóð og fleiri menntalöndum eiga borgir og bæj-
arfélög mjög oft vönduð gistihús, en leigja þau kunn-
áttumönnum til starfrækslu. Bæir og borgir viður-
kenna með þessu skyldu sína gagnvart gestum, sem
þangað sækja. Hins vegar hefur fleirum en Áka Jak-
obssyni orðið hált á að þjóðnýta gistihússtarfsemina.
Hér er bent á hættulitla leið til að leysa málið. Þeir
aðilar, sem vildu hætta á að taka, margar milljónir að
3áni til að bæta úr gistihúsleysi Reykjavíkur, fá hér