Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 96
ss
ÓFEXGUR
þessar rnóttökur benda eindregið í þá átt, að í slíkum
menntastofnunum sé ætlazt til, að þeir „drekki óspart
lífsins vín“. Á sérstökum tyllidögum, svo sem um ára-
mót, ber við í íslenzkum skólum, að mörg hundruð
manna, aðallega ungar konur og karlar, eru á áþreif-
anlegan og óviðeigandi hátt undir áhrifum áfengis,
enda taka þá kennarar og eldri nemendur þátt í hóf-
inu. Þar sem vínnautn kennara og nemenda er orðin
föst og viðurkennd venja, er fylgt sömu reglu, ef reglu
skyldi kalla, við nemendaafmæli og hópferðir og engu
síður þær, sem talið er, að famar séu í sambandi við
kennsluna.
Ef vínnautn kennara og nemenda á að vera föst til-
haldsvenja í sumum af menntastofnunum þjóðarinnar,
hlýtur sú tilhögun að leiða til þess, að samdrykkja
verður að fastri venju í mörgum skólum landsins. Með
þessari tillögu er ríkisstjórninni bent á einfalda og aug-
Ijósa leið til þess að verja heiður íslenzkra uppeldis-
mála. Til þess að má drykkjuskaparblettinn af öllum
skólum, sem ríkið starfrækir eða styrkir, þarf ekki
annað en að ríkisstjómin leggi eindregið og undanþágu-
laust bann gegn því, að nemendur og kennarar hafi
vínveitingar um hönd í skólum landsins eða á öðrum
stöðum, þar sem kennarar og nemendur eru saman
við nám eða á gleðifundum.
Þó að tillaga þessi verði að líkindum ekki útrædd á
þessu þingi, þar sem brátt mun draga að þingslitum,
er efni hennar alkunnugt bæði þingi og ríkisstjórn. Er
þess skemmst að minnast, að einn af talsmönnum
stærsta þingflokksins lét nýlega svo um mælt í þing-
ræðu, að sú vínnautn í skólum, sem hér er átalin, sé
hættulegasta uppspretta ofdrykkju á Islandi. Ríkis-
stjórnin þarf vitanlega ekki að bíða eftir formlegri sam-
þykkt um svo sjálfsagða endurbót, heldur hefur hún
það í hendi sinni, að tilkynna öllum forráðamönnum
íslenzkra menntastofnana, að frá byrjun næsta skóla-
árs verði allt áfengi að vera útlægt úr skólum landsins.
XXVHL Flugöryggi.
Á mjög skömmum tíma hefur íslenzka þjóðin eignazt
allmargar flugvélar og flugferðir orðið liður í samgöng-
um innaniands. En hér er við mikla erfiðleika að 'etja.