Ófeigur - 15.08.1948, Síða 41
ÓFEIGUR
41
Finnland. Mússólíni réðst á Frakkland og England, þeg-
ar hann hugði þau varnarvana og vígð fullkomnum
ósigri. Að síðustu réðst Japanskeisari á Bandaríkin á
sérstaklega sviksamlegan hátt. Allur þessi hernaður
einveldisþjóðanna var hafinn án þess að nokkurt þjóð-
þing væri spurt ráða. Einræðisríkin höfðu auk þess ætíð
þá aðferð að byrja hernaðinn fyrirvaralaust, án þess
að lýsa yfir stríði.
I heimsstyrjöidinni síðustu voru vesturveldin, Eng-
land, Frakkland og Bandaríkin, einu þjóðirnar, sem
fylgdu hinum gömlu venjum siðaðra þjóða, að lýsa
;yíir styrjaldarástandi á formlegan hátt. Eftir að Hit-
ler hafði ráðizt á Pólverja 1939, urðu bandamenn Pól-
lands, Bretar og Frakkar, að koma þeim til liðs, eftir
áður gerðum samningum, en þeir tilkynntu Þjóðverj-
nm komu sína, og hefur sú tilkynning að lokum orðið
Þjóðverjum örlagarík. Á sama hátt tilkynntu Banda-
ríkjamenn Þjóðverjum, að stríð væri hafið, eftir að
Japanar, bandamenn Hitlers, höfðu ráðizt á Perluhöfn
með þeim hætti, sem lengi mun geymast í minni manna.
Nú hafa þrjú einræðisríki verið að velli lögð. Rúss-
land er eitt af þeim stórveldum, sem ráðizt hafa fyrir-
varalaust á aðrar þjóðir. Það, sem einræðisstjórn Rússa
gerði í byrjun síðustu styrjaldar, getur hún vafalaust
endurtekið á ókomnum árum, og það því fremur, sem
þátttaka Rússa í heimsstyrjöldinni er vel fallin til að
auka trú forráðamanna í Moskvu á hermátt ríkisins.
Allt öðru máli er að gegna um þingstjórnarríki vestur-
landa. Engin smáþjóð byrjar styrjöld að fyrra bragði.
Forráðamenn vesturveldanna, Bretar og Bandaríkja-
menn, verða í þeim efnum algerlega að fara eftir vilja
borgaranna í landinu og ákvörðunum þjóðþinganna.
Þessi tvö stórveldi munu þess vegna^ aldrei hefja styrj-
öld, nema þau verði að verja líf borgaranna og framtíð
þjóðanna. Ástæðan til þess, að forráðamenn Breta létu
á svo áberandi hátt undan síga fyrir ofbeldi Iiitlers
1938, var eingöngu sú, að brezka þjóðin og samveldis-
löndin voru ekki nema að nokkru leyti búin að skilja
liið sanna eðli einvaldsleiötoganna í Þýzkalandi og Italíu.
Ari síðar voru forráðamenn möndulveldanna búnir að
sannfæra hina enskumælancli borgara í Bretlandi um,
að þeir yrðu annaðhvort að stöðva yfirgang Hitlers
eða verða þrælar möndulveldanna um ótiltekna fram-