Ófeigur - 15.08.1948, Blaðsíða 47
ÓFEIGUR
47
menn og Danir geta notað kóngulóarvef þann, sem er
nefndur bandalag sameinuðu þjóðanna, til að koma mál-
um sínum í kyrrþey þannig fyrir, að þær taki sér rétta
stöðu, þegar kemur að örlagastund.
Ef menn athuga aðstöðu vesturþjóðanna, eins og
hún er nú, er auðsætt, að þær geta alls ekki treyst á
hið væntanlega þjóðabandalag, nema sem vinsæla tál-
von fyrir menn, sem eru þreyttir og bölsýnir eftir átök
i tveim heimsstyrjöldum. Bandaríkjamenn og þjóðirn-
ar í brezka heimsveldinu hafa þess vegna tekið það
:ráð að gera varnarmátt sinn svo mikinn, að ófýsilegt
verði fyrir einræðisþjóðir heimsins að sækja Engilsaxa
heim með herskildi. í þessum viðbúnaði eru flotastöðv-
ar Bandaríkjamanna meginþáttur. Þeir ætla að nota
eyjarnar í Kyrrahafi á þann hátt, að hvergi vanti hlekk
í varnarkeðjuna alla leið frá ströndum Ameríku og
vestur að Kína og Síberíu. Til hinnar hliðar verður At-
lantshafið að vera örugg leið milli Ameríku, Englands
og smáríkjanna í Evrópu norðan og vestanverðri. Þeg-
ar brezka heimsveldið bætir við sínum varnarmætti
með lönd og vígstöðvar í öllum löndum heims, þá verð-
ur því ekki neitað, að í þessu samstæða varnarkerfi
merkilegustu menntaþjóða heimsins er fólgið eina ör-
yggið fyrir friði þjóðanna á ókomnum árum. Má dæma
um það öryggi af reynslu undangenginna ára. Japanir
réðust á Kína af því, að það var sundrað og vanmegna,
en fullvíst, að þjóðabandalagið skorti hug og dug til
að stöðva sterka ófriðarþjóð. Mussolini réðst á Albaníu,
Abessiníu og Grikkland, af því að hann þóttist þess
fullviss, að þessum þjóðum gæti ekki borizt nein hjálp.
Hann sagði Frökkum stríð á hendur, þegar land þeirra
var gersigrað. Hitler lagði meginstund á að vígbúast
og undirbjó heimsstríð af því að hann vissi, að enska
þjóðin þráði svo mjög frið, að þingfulltrúar hennar
lögðu frá sér vopnin til að þóknast óskum kjósenda.
Hitler vissi, að Frakkland og England voru mjög óvið-
búin stríði og borgarar beggja landanna skildu alls
ekki hinn markvissa stríðsundirbúning Þjóðverja. Hit-
ler öðlaðist þor til að leggja út í heimsstyrjöld, af því
að hann hafði tryggt sér velvild Rússa um stundar-
sakir og samið við þá að skipta milli sín og þeirra
nokkrum smáþjóðum. Ef England og Frakkland hefðu
verið tiltölulega jafnvel búin undir ófrið og Þýzkaland,