Ófeigur - 15.08.1948, Page 48

Ófeigur - 15.08.1948, Page 48
48 ÓFEIGUR mundu nazistar alls ekki hafa treyst sér til að leggja út í nýja heimsstyrjöld. Þetta er fyllilega ljóst hverj- um manni, er fylgzt hefur rneð gangi stjórnmála í heiminum á undangengnum árum. Bandaríkin ætla sýnilega ekki að freista einræois- herra nútímans til að leggja út í nýja styrjöld af því, að lýðræðisríkin séu veik og vopnavana. Bandaríkin eru nú voldugasta þjóð í heimi að auði, herafla á sjór landi og í lofti. Þau búa að miklum náttúrugæðum og tækni. Forustumönnum þjóðarinnar er vel ljóst af sögu. éinræðisþjóðanna, að þær svífast einskis í baráttu sinni um auð og landvinninga, og að á þá muni leitað, þó að Japan og Þýzkaland verði um langa stund ekki hættu- légir keppinautar. Aðstaðan í heimspólitikinni er þess. vegna sú, að Engilsaxar hafa tekið að sér óskrifaða for- ustu til að vernda frelsi og menningu vesturlanda. All- ar þingstjórnarþjóðir, sem því mega við koma, leita í þetta skjól. Einræðisríkin mynda út af fyrir sig annan stjörnuklasa. Glitvefnaður alþjóðabandalagsins verður væntanlega um nokkra stund breiddur til skrauts yfir þessar tvær ósamrýmanlegu andstæður. Erlendir menn, sem þekkja nokkuð til íslenzkra mála, undrast dirfsku íslendinga að leggja út í það stórræði að rnynda nútíma ríki, þó að þegnarnir séu ekki nema 125 þúsund. En öll þjóðin er sammála um að fram- kvæma þessa djörfu nýjung. Vitna íslendingar auk þess í þá staðreynd, að forfeðrum þeirra hafi tekizt í forn- öld að halda við merkilegu menningarríki í nálega 4 aldir. En á þeim tíma treysti þjóðin á einangrun lands- iiis sem vörn móti landræningjum og innrásarher. Þetta lánaðist fram eftir öldum. En hvenær sem á reyndi, svo sem í Tyrkjaráninu eða þegar Gilpin tók landssjóð- inn og Jörundur æðsta valdið í landinu í byrjun 19. ald- ar, var sýnilegt, að ísland lá gersamlega varnarlaust fýrir fótum hvers bófa, sem vildi ásælast gæði þess. Bretar létu varðlið sitt á hafinu bæta úr yfirgangí Jörundar og fjártöku Gilpins og sönnuðu enn einu sinni hina þöglu vernd brezka fiotans í norðurhöfum. Liðu svo tímar, að Islendingar vissu ekki annað en að þeir gætu lifað í ævarandi friði í skjóli við blátreyjur Breta. Þessu gifturíka tímabili lauk, þegar kafbátar óg flugvélar voru orðin einhver máttugustu hernaðar- tæki í stórveldastyrjöld. 1 stað þess að ísland var áð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.