Ófeigur - 15.08.1948, Qupperneq 93
ÓFEIGUR
93
xaeira fé undir höndum, þegar hann reisti Hótel Borg,
mundi hann hafa keypt hina umræddu lóð og haft gesta-
stofu á neðstu hæð, en gestaherbergi yfir. En þá fram-
kvæmd má gera ennþá og sýnir reynslan, að sú breyt-
ing er tímabær. Höfuðstaðinn vantar gistihús. Ríkið,
bærinn og efnaðasta félag landsins hafa séð þörfina,
viijað bæta úr henni, en ekki ráðið við örðugleikana.
Um óákveðinn tíma verður Hótel Borg eina stórhótelið
í höfuðstaðnum. En þar þarf viðbótar við, og hana má
gera með hóflegum tilkostnaði, eins og sannað er hér
að framan. Forráðamönnum landsins kom til hugar
að taka margar milljónir að láni í nýja gistihúsbygg-
higu. Slíkt gistihús hefði borið vott um stórhug og
myndarskap þjóðarinnar, en það hefði að líkindum orð-
ið að afskrifa höfuðstólinn um leið og húsið tók til
starfa. Samt gat þjóðarnauðsyn réttlætt slíkt fram-
iag. Hér er bent á ódýra og framkvæmanlega leið. I
stað þess að taka lán, er hér gert ráð fyrir, að gest-
imir, sem koma á Hótel Borg, leggi fram á tveim ár-
um, með veitingaskattinum, framlag ríkisins í húsið, að
framlagið verði lán með veði í bygingunni og að þjóðin
fullgeri með þessum hætti aðalgistihús höfuðstaðarins,
svo að þar verði bætt úr vöntun gestastofu og aukið allt
að 30 herbergjum við gamla gistihúsið. Ef bætt verður
við, áður langt um líður, öðrum minni og ódýrari gisti-
stöðum, mun að líkindum mega una fyrst um sinn við
þá lausn á hótelmálum Reykjavíkur.
Frá því að þinghaid hófst í Reykjavík fyrir einni
öld, hafa utanbæjarþingmenn verið heimilislausir og
framandi í höfuðstaðnum. Þeir hafa í hvert sinn orðið
að keppa við skólapilta um leiguhúsnæði, hvar sem það
var fáanlegt. Alloft hafa þingmenn orðið að búa tveir
saman í stofu. Á síðustu árum hefur komið til umræðu
að byggja sérstaka heimavist í Reykjavík handa utan-
bæjarþmgmönnum, en lítið hefur orðið úr þeim fram-
kvæmdum. Ef lag væri á stjórnarháttum landsins, þarf
þingið ekki að starfa nema þrjá mánuði árlega. Stend-
ur heimavistin þá auð mikinn hluta árs. Á undanföm-
um árum hafa margir utanbæjarþingmenn búið um
þingtímann á Hótel Borg, en gistihúsið er of lítið til
að geta haft marga setugesti langdvölum. Við það
verður gistihúsið að „pension“. Erlendis fá gestir nú
ekki að búa nema fáa daga í einu á sama gistihúsi til