Ófeigur - 15.08.1948, Page 97
ÓFEIGUR
97
Landið er stórt og fjöllótt, en fábyggt og lítið um leið-
armerki. Röð af jöklum liggur frá austri til vesturs yfir
nálega þvert landið. Tveir voldugir hafstraumar liggja
að landinu, annar kaldur, en hinn heitur. Óviða í heim-
inum munu vera jafnerfið flugskilyrði eins og á Is-
landi. Þegar þar við bætist, að flugmennirnir hafa all-
ir lært list sína í framandi löndum við gagnólík skil-
yrði og hafa tiltölulega litla reynslu hér á landi, þar
sem flugstarfsemin er svo nýtilkomin, þá er sízt að
furða, þó að hér hafi orðið allmörg flugslys og trygg-
ingar í sambandi við flugstarf óvenjulega háar.
Almenningi er ljóst, að hér þarf að gerast mikil breyt-
ing. Yfirstjóm íslenzkra veðurfræðimála þarf ætíð að
vera í höndum íslenzkra kunnáttumanna, sem þekkja
landið og veðráttuna af eigin raun, en ekki aðallega.
af bókum og skýrslum. En auk þess eru aðkallandi tvö
verkefni í flugmálunum. Það þarf að draga úr hinni
miklu eyðslu við flugvöllinn í Reykjavík og eyðslu við'
flugstjórn á hafinu sunnan við landið vegna annarra
þjóða, enda er lítið tryggð innieign Islendinga í þeim
efnum. Það eru 6 milljónir kr. I stað þess þarf að
bæta lendingarstaði fyrir flugvélar svo víða sem kost-
ur er á. Má það kallast furðulegt hirðuleysi, að van-
rækja að halda flugvellinum í Kaldaðarnesi við til nauð-
lendinga, þar sem sá völlur var byggður með tugmillj-
óna tilkostnaði fyrir fáum árum. Miklu víðar mætti
auka öryggi með heppilegum lendingarbótum.
Annar þáttur þessara öryggismála er engu síður
nauðsynlegur. Það er að æfa flugmennina miklu meira
en nú er gert við íslenzka landshætti og veðurskilyrði.
Flestir flugmennirnir eru, svo sem vænta má, ungir
menn og djarfir, enda hafa margir þeirra sýnt í verki
vaskleika og manndóm. En þeir hafa eins og fyrr er
ritað, numið í öðru landi við margfalt betri skilyrði og
staðbundnari veðráttu en á íslandi. Hér verða flug-
menn að sigrast á síbreytilegri veðráttu, ofsaveðrum,
löngu skammdegismyrkri og verða að búa við vöntun
hjálpartækja, sem mikið er um í þéttbyggðu löndun-
um. Úr þessu verður hér á Islandi bezt bætt með þvíi
að veita flugmönnum staðbundna, en mjög ýtarlega
æfingu. Flugmennirnir eiga flestir heima í Reykjavík.
Hér bíða þeir f jölmarga landlegudaga. Alla slíka daga
mætti nota til að þjálfa liðið og búa hvem mann undir