Ófeigur - 15.08.1948, Qupperneq 100
100
ÓFEIGUR
ur en samanburður við húsmæðraskóla sveitanna. Þeir
eru margir og stöðugt beðið um fleiri. Þeir eru alltaf
fullskipaðir, og komast færri að en vilja. Á Laugar-
vatni eru sum ár 150 umsóknir um húsmæðradeildina,
en ekki húsrúm fyrir meira en 20. Svipuð er sagan
um alla hina húsmæðraskólana. Það mun með réttu
verða talinn varanlegur heiður íslenzkra kvenna að
hafa af eigin rammleik mótað sitt eigið skólaskipulag.
Þær láta kenna hin daglegu störf kvenna, eins og þau
eru á hverju heimili: matseld, sauma, þvottastörf og
vefnað. Samhliða verklega náminu er bætt við nokkru
bóknámi, en hin hagnýta vinna er aðalatriðið. Konur
sækja þessa skóla svo mjög, af því að þær trúa því, að
vinnunámið geri þær færari til að taka þátt í lífsbar-
áttunni. Aftur á móti hefur stöðugt fylgt hinum bók-
lærðu búfræðingum nokkur efi um, að þeir yrðu að
öllu samtöldu betri bændur eftir skólaveruna.
Um nokkur ár hefur verið reynt að koma við vínnu-
kennslu að sumrinu til á Hólum og Hvanneyri. Tilgang-
urinn var, að hver íiemandi hefði þar verklegt nám í
eitt sumar. En á undangengnum dýrtíðarárum hefur
þetta vinnunám ekki verið vinsælt. Margir meðal hinna
ungu manna sögðu, að í fólksleysinu þyrftu þeir að
vinna heima hjá foreldrum sínum um sláttinn. auk þess
hafa sumir þessir nemendur haldið því fram, að sveita-
menn kynnu nú nokkuð vel til heyskaparverka og væri
þar sízt þörf á skólakennslu.
Hér er byggt á þeirri reynslu, að erfitt sé fyrir bænda-
efni að vera að heiman um sláttinn og við heyskap
megi treysta allmikið á vinnumenning heimilanna. Þess
vegna er hér lagt til, að nemendur í bændaskólunum
komi þangað í sláttarlok. Þeir geta, ef vel er á haldið,
eftir þann tíma tekið þátt í votheysverkun og upptöku
og meðferð garðmetis. Síðan kemur að því að taka.
sundur, smyrja og búa hæfilega um allar verkvélar frá
sumrinu.Þar næst er tækifæri til að kenna að stjóma
og hirða bifreiðar og bifvélar, sem mjög verða notaðar
við allan búrekstur. Mikill vandi er að mjólka með vél-
um og að hirða öll þar tilheyrandi tæki svo sem vera
ber. Búfjárhirðing hefur aldrei verið kennd að gagni
í búnaðarskólum og ekki heldur kynbætur húsdýra,
nema með bóklestri. Þetta er höfuðsynd, og er jafn
nauðsynlegt, að bændaefni kunni öll nauðsynleg vinnu-